Kínverska bílaframleiðandanum BYD hefur verið bannað að selja jeppann Ti7 innan Evrópusambandsins vegna líkinda hans við Land Rover Defender.
Bannið var úrskurðað af dómstóli í Hollandi eftir að Jaguar Land Rover (JLR) höfðaði mál gegn fyrirtækinu fyrr á árinu vegna meintra brota á hugverkaréttindum.
Um er að ræða bráðabirgðaúrskurð sem tekur gildi einni viku eftir að hann var kveðinn upp á föstudag. The Guardian greinir frá.
„Í þessari flýtimeðferð kemst dómari, sem fjallar um bráðabirgðaráðstafanir, að þeirri niðurstöðu að Ti7 brjóti gegn hönnunarréttindum Jaguar Land Rover innan Evrópusambandsins,“ segir í úrskurði héraðsdómstólsins í Haag. „Einkennandi og sérkennandi þættir hönnunarinnar má sjá í BYD Ti7.“
Dómstóllinn bannaði BYD einnig að framleiða bílinn í nýrri verksmiðju fyrirtækisins í Szeged í Ungverjalandi, þar sem gert er ráð fyrir að bílaframleiðsla hefjist í lok árs. Bannið gildir þar til leyst hefur verið úr málinu um hugverkaréttindin.
Munu áfrýja úrskurðinum
Í yfirlýsingu frá JLR segir: „Við verndum hugverkaréttindi okkar og grípum til lagalegra aðgerða þegar þess gerist þörf. Málaferli standa enn yfir og við munum ekki tjá okkur frekar að svo stöddu.“
BYD segir hins vegar að fyrirtækið sé ósammála úrskurðinum og muni áfrýja honum. Fyrirtækið segir bílinn vera afrakstur sjálfstæðrar hönnunarvinnu og brjóti ekki gegn neinum réttinum JLR.
„Við munum nýta allar tiltækar lagalegar leiðir til að sýna fram á að þessi niðurstaða sé röng,“ segir í yfirlýsingu þeirra.
Ti7 er kominn í sölu í Bretlandi og þar kostar hann 47.995 pund, eða hátt í átta milljónir, og er meira en 20.000 pundum ódýrari en Defender.
Í úrskurðinum kemur fram að BYD hafi sem stendur engin áform um að setja Ti7 á markað innan ESB. Bíllinn hefur verið til sölu í Kína frá því í september 2025.