Danska ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku áform um brottvísunarstöð í Rúanda sem verður opnuð á næsta ári í samvinnu við Austurríki, Holland, Þýskaland og Grikkland. Gert er ráð fyrir að 100 einstaklingar geti dvalið þar hverju sinni, en hvort land fyrir sig mun hafa 20 pláss til umráða.
Danska ríkisútvarpið greinir frá. Danska brottvísunarstofnunin hefur tilkynnt 1.078 einstaklingum að þeir hafi ekki lengur leyfi til að vera í landinu og verði að yfirgefa það. Algengustu ástæður þess að fólki er vísað úr landi eru einkum dómsuppskurðir og synjun um alþjóðlega vernd. Þá eru einnig dæmi um að fólki sé gert að yfirgefa Danmörku ef atvinnu- eða dvalarleyfi hafa runnið út eða verið felld úr gildi, eða vegna Dyflinarreglugerðarinnar.
Alls hafa 365 einstaklingar fengið synjun um alþjóðlega vernd í Danmörku. Af þeim eru 120 sem uppfylla skilyrði fyrir brottvísun til Rúanda, en það eru þeir einstaklingar sem hafa hvorki gerst sekir um glæp né eiga ung börn. Flestir þeirra sem hafa fengið synjun um alþjóðlega vernd koma frá Íran, Sýrlandi og Rússlandi.
Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur telur að þetta nýja fyrirkomulag á brottvísunum til Rúanda muni hafa fælingarmátt og væntir þess að fleiri ríki bætist í hópinn. Brottvísun til Rúanda er þó alls ekki óumdeild og mannréttindasamtök hafa lýst yfir áhyggjum af því að ekki verði hægt að tryggja mannréttindi og önnur grundvallarréttindi fólks.