Demókrataflokkurinn er búinn að tryggja sér 258 sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Það er mesti meirihluti sem flokkurinn hefur haft í deildinni í 34 ár.
Greint var frá því í gær að demókratinn Chuck Hubbard hefði unnið nauman sigur í þingkosningunum í Bandaríkjunum á repúblikananum Virginu Foxx, þingmanni Norður-Karólínu í fulltrúadeildinni.
Repúblikanaflokkurinn verður með að minnsta kosti 173 sæti í deildinni en alls eru 435 sæti í fulltrúadeildinni. Enn á eftir að skera úr um kosninganiðurstöður fyrir fjögur þingsæti í Minnesota, Tennessee og tvö í Louisiana.
Demókratar eru einnig með meirihluta þingsæta í öldungadeildinni, eða 56 sæti á móti 44 sætum repúblikana.
Ætla að rannsaka eitt og annað ofan í kjölinn
AP fréttaveitan segir að demókratar hafi heitið því að hefja fjölda rannsókna og krefjast gagna og vitnisburðar til að tryggja mótvægi þingsins við vald Donald Trumps Bandaríkjaforseta.
Þá er ráðgert að hefja rannsókn á því hvernig forsetinn og fjölskylda hans hafa hagnast frá því að hann tók aftur við embætti forseta. Hakeem Jeffries, sem er talinn líklegur forseti fulltrúadeildarinnar, hefur ekki útilokað að reynt verði að ákæra Trump í þriðja sinn.