Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðrum skyldum lyfjum. Þessi lyf hafa hjálpað fólki að halda blóðsykrinum í skefjum en vinsælustu áhrifin eru þau að fólk léttist gjarnan á lyfinu. Wegovy kom einmitt á markað sem sérstakt þyngdarstjórnunarlyf þar sem Ozempic kom fyrst og fremst á markað sem sykursýkislyf. Eins og flest lyf veldur Ozempic aukaverkunum.
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?