Ný skýrsla Um­hverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir

Ný skýrsla Um­hverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir

Ný skýrsla Um­hverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir

Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu rannsóknum á Drekasvæðinu. Þeim rannsóknum lauk árið 2018, þegar Orkustofnun felldi niður síðasta rannsóknarleyfið.

Fjarðabyggð, Viðskiptaráð og Heiðar hófu umræðuna á ný

Umræða um hugsanlega olíuleit á Drekasvæðinu, sem er sá hluti Jan Mayen-hryggsins sem er innan lögsögu Íslands, hófst á ný fyrir alvöru í fyrra, eftir að hafa legið í dvala frá árinu 2021, þegar því var lýst yfir í stjórnarsáttmála síðari ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að ekki yrðu gefin út ný rannsóknarleyfi á Drekasvæðinu.

Í mars í fyrra samþykkti bæjarráð Fjarðabyggðar að beina því til stjórnvalda að endurmeta hagkvæmni olíuleitar á Drekasvæðinu þar sem lítið miðaði í orkuskiptum á landinu.

Í september sama ár birti Viðskiptaráð Íslands úttekt þar sem stjórnvöld voru hvött til að bjóða út sérleyfi til olíuleitar og vinnslu á Drekasvæðinu. Þar kom fram að olíufundur gæti haft í för með sér ríkulegan ávinning og að skatttekjur gætu numið 51 til 102 milljónum á hvern íslenskan ríkisborgara.

Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar, sagði af því tilefni að best væri að stofnunin kláraði að yfirfara gögn frá því að síðast var leitað að olíu á Drekasvæðinu áður en ákvarðanir yrðu teknar um frekari leit.

„Okkar hlutverk er í sjálfu sér að leggja mat á faglegu gögnin sem liggja til grundvallar. Hitt er meira svona skoðun hagsmunaaðila,“ sagði hann meðal annars.

Heiðar ósáttur með ráðherra

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, hafði áður talað á svipuðum nótum og bætt í með því að segja að stór og stöndug fyrirtæki sem tóku þátt í olíuleit við Drekasvæðið hefðu skilað inn rannsóknarleyfum vegna þess að þau hefðu ekki séð fram á að það væri arðbært að vinna olíu á svæðinu.

Heiðar Guðjónsson, sem var stjórnarformaður olíuleitarfélagsins Eykon Energy, gagnrýndi þau orð Jóhanns Páls harðlega og sakaði hann um að dylgja um að íslenskt fyrirtæki hefði farið á hausinn í síðustu olíuleit hér við land.

Í nóvember síðastliðnum greindi fréttastofa svo frá því að nýtt félag, Dreki Kolvetni, hefði verið stofnað um olíuleit og að sami Heiðar Guðjónsson færi fyrir félaginu.

Ríkulegar olíulindir í næsta nágrenni

Umhverfis- og orkustofnun hefur nú lokið við að yfirfara gögn frá því að síðast var leitað að olíu á Drekasvæðinu og birt skýrsluna Olíuleit á Drekasvæði: Samantekt á niðurstöðum sérleyfishafa og stöðu þekkingar.

Í samantekt skýrslunnar segir að Jan Mayen-hryggur liggi til suðurs frá Jan Mayen og inn fyrir lögsögu Íslands. Svæðið innan íslenskrar lögsögu sé nefnt Drekasvæðið. Rannsóknir hafi sýnt að hryggurinn er að hluta til úr léttara efni heldur en almennt á við um berg hafsbotnsins og kenningin sé sú að fyrir opnun Atlantshafsins hafi Jan Mayen-svæðið legið sem flís á milli núverandi austurstrandar Grænlands og landgrunnsins vestur af núverandi Noregi, sem hafi færst út á mitt Norður-Atlantshafið í tengslum við opnun þess með myndun Ægishryggs og síðan færslu rekbeltis frá Ægishrygg á Reykjaneshrygg. 

„Ríkulegar olíu- og gaslindir eru á norska landgrunninu og sambærileg olíumyndandi jarðlög er einnig að finna á austurströnd Grænlands. Út frá þessari vitneskju liggur grunnhugmyndin um að slík jarðlög sé einnig að finna á Jan Mayen-svæðinu og því væri möguleiki á að olíu eða gas væri þar að finna í vinnanlegu magni. Fjöldi rannsókna hefur verið framkvæmdur á Drekasvæðinu og Jan Mayen-hryggnum um áratugaskeið,“ segir í skýrslunni. 

Á grundvelli þeirra rannsókna hafi verið skipuð samráðsnefnd um landgrunns- og olíuleitarmál árið 1999 og Alþingi samþykkt lög um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis árið 2001. Veitt hafi verið stök leyfi til olíuleitar árin 2001 og 2002. Árið 2005 hafi ríkisstjórn Íslands samþykkt að hefja skyldi undirbúning að útgáfu leyfa til rannsókna og vinnslu kolvetnis á íslensku yfirráðasvæði. Í mars 2007 hafi verið kynnt tillaga að áætlun um hugsanlega útgáfu sérleyfa á Drekasvæðinu í samræmi við lög um umhverfismat áætlana. Fyrsta útboð á sérleyfum hafi farið fram árið 2009. Tvær umsóknir hafi borist en síðar verið dregnar til baka. 

Í kjölfar lagabreytinga, breytinga á reglum um framkvæmd leitar, rannsókna og vinnslu kolvetnis og frekari rannsókna á svæðinu hafi útboð verið auglýst að nýju 3. október 2011. Í kjölfarið hafi leyfi verið veitt eftirfarandi aðilum: Faroe Petroleum AS og Íslensku kolvetni ehf., Valiant Petroleum1 og Kolvetni ehf. og CNOOC International og Eykon ehf. Í samræmi við ákvæði samkomulags Noregs og Íslands frá 1981 um landgrunnið milli Íslands og Jan Mayen hafi norska ríkinu verið boðin þátttaka í leyfunum. Norðmenn hafi þekkst boðið og tekið þátt að fjórðungshlut í öllum leyfunum í gegnum Petoro, olíufélag norska ríkisins

Fyrsta leyfið lagt inn 2014

Í skýrslunni eru rannsóknir rannsóknarleyfishafa raktar. Í tilfelli Faroe Petroleum hafi engar sjálfstæðar mælingar farið fram á leyfissvæðinu en fyrri rannsóknir hafi verið endurmetnar ásamt nánari greiningu á völdum gögnum. Niðurstaða leyfishafa hafi verið að vegna að minnsta kosti þriggja kílómetra þykkrar basaltþekju á yfirborði leyfissvæðisins væri ólíklegt að frekari endurvarpsrannsóknir myndu gefa svör varðandi tilvist kolvetnis og að óvissa og áhætta væru of mikil til að forsvaranlegt væri að ráðast í rannsóknarboranir. Leyfið hafi verið lagt inn 12. desember 2014.

Félagið Ithaca, sem keypti leyfishafann Valiant, hafi framkvæmt endurvarpsmælingar á samtals 1.004 kílómetra löngum sniðum á leyfissvæðinu. Niðurstaða leyfishafa hafi verið að jarðfræði svæðisins væri mun flóknari en áður hefði verið talið, mælingar bentu til þess að hugsanleg móðurbergsjarðlög væru á umtalsvert meira dýpi en æskilegt sé til myndunar kolvetnis, ástand mögulegs geymslubergs væri óvíst meðal annars vegna greftrunar og þjöppunar með hugsanlegri ummyndun, og að líkur væru taldar á því að jarðlög hefðu orðið fyrir umtalsverðum áhrifum af tektónískum hreyfingum vegna uppbrots meginlandsskorpu. Samandregið hafi það verið mat leyfishafa að niðurstöður mælinga og greininga gæfu ekki tilefni til þess að fara í frekari rannsóknir. Leyfið hafi verið lagt inn 3. janúar 2017.

CNOOC hafi ráðist í umfangsmiklar endurgreiningar á 3.700 kílómetrum af fyrirliggjandi mæligögnum, mælt samanlagt 2.647 kílómetra af nýjum endurvarpsmælingum ásamt 2.671 kílómetrum af þyngdarmælingum. Segulmælingar hafi farið fram á 2.639 kílómetrum og kortlagðir hafi verið 35.000 ferkílómetrar af hafsbotni á leyfissvæðinu. Eftir ítarlegar greiningar hafi það verið niðurstaða leyfishafa að þykkar basaltþekjur og ummerki brotahreyfinga og eldvirkni gerðu alla túlkun á dýpri hluta skorpunnar flókna og erfiða. Með vísan til tæknilegra örðugleika við að greina lögin, vegna lágs olíuverðs og með hliðsjón af breyttri stefnu fyrirtækisins hafi félagið lagt til við samstarfsaðila að leyfinu yrði skilað inn. Petoro hafi samþykkt tillöguna en Eykon óskað eftir því að finna nýja samstarfsaðila. Orkustofnun hafi ekki fallist á beiðni félagsins þar sem það uppfyllti ekki lögbundin viðmið um tæknilega getu og fjárhagslega burði og leyfið hafi verið fellt niður 7. mars 2018.

ÍSOR fór yfir niðurstöður leyfishafa

Þá segir í skýrslunni að Orkustofnun hafi falið ÍSOR, óháðu rannsókna- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði jarðhita, jarðfræði og sjálfbærrar auðlindanýtingar á Íslandi og erlendis, að fara yfir greiningar leyfishafa og gefa stofnuninni sjálfstætt mat á mælingum, greiningum og túlkunum leyfishafa. 

ÍSOR bendi á að jarðfræði og jarðsaga Jan Mayen-svæðisins, og Drekasvæðisins sérstaklega, sé mun flóknari en áður var talið. Þar fari ekki síst að rekbeltaflutningurinn hafi haft í för með sér nokkur stutt virknitímabil þar sem kvikuhlaup og innskotavirkni hafi þrengt sér inn í hin fornu meginlandsjarðlög við flutninginn vestur. 

Stór hluti eldri jarðlaga frá því fyrir opnun Atlantshafsins sé undir einni eða fleiri hraunlagasyrpum auk þess sem víðtæk innskot og jarðskorpuhreyfingar hafi brotið upp eldri og yngri jarðlög. Þetta takmarki mjög notkun hljóðendurvarps til greininga á dýpri jarðlögum og við leit að vænlegum stöðum fyrir söfnun kolvetnis. Gróft mat á dýpi olíu- og gasmyndunarglugga í jarðlögum á Drekasvæði sé tilgreint á bilinu 900 til 1.600 metrar fyrir olíu og 1.850 til 3.500 metrar fyrir gas. Hraunlög og/eða síðari tíma setmyndun hefur hins vegar fært olíumyndandi jarðlög vel niður fyrir þau mörk. 

„Að mati ÍSOR er stór hluti áhugaverðra svæða sem litið var til í upphafi rannsókna tengdur innskotum sem hafi ýtt upp jarðlögum fyrir ofan sig en jafnframt hitað og brotið upp fyrirliggjandi olíumyndandi og olíusöfnunarjarðlög og því litlar líkur á að kolvetni finnist þar í vinnanlegum mæli. Í skýrslum ÍSOR er jafnframt bent á að nyrðri hluti Jan Mayen-svæðisins hafi orðið fyrir minni áhrifum af rekbeltaflutningnum og út frá fyrirliggjandi gögnum eru meiri líkur taldar á að kolvetni geti hafa varðveist í jarðlögum á Jan Mayen-hryggnum norður af Drekasvæðinu.“

Hvað varðar Drekasvæðið í heild sé það niðurstaða ÍSOR að frekar beri að líta á svæðið sem afmarkaða hryggi af meginlandsbergi innan í flóknu eldvirku umhverfi. Svæðið hafi orðið fyrir umtalsverðum áhrifum af rekferlum, brotahreyfingum, eldvirkni og innskotum. Hafi kolvetni myndast áður en móðurberg hefur grafist niður á núverandi dýpi sé umtalsverð hætta á að tektónískar hreyfingar á seinni stigum hafi opnað því leið út úr staflanum.

Ekki útilokað en litlar líkur

Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að Umhverfis- og orkustofnun hafi farið ítarlega yfir rannsóknir, túlkun og niðurstöður leyfishafa, farið yfir greiningar ÍSOR á þeim og kynnt sér margvíslegar aðrar greiningar og greinar varðandi túlkun og mat á því hvort og hvar kolvetni í vinnanlegum mæli geti verið að finna á Drekasvæðinu. Vegna þeirra aðstæðna sem séu á svæðinu og með hliðsjón af þeim ferlum og atburðum sem talið sé að hafi orðið þar sé enn þá ríkjandi mikil óvissa um tilvist, gerð og ástand hugsanlegra jarðlaga sem gætu staðið undir myndun, flutningi og varðveislu kolvetnis. 

„Samantekið eru taldar hverfandi líkur á að kolvetni finnist á Drekasvæðinu í vinnanlegu magni, en hafa ber í huga að ekki hefur verið sýnt fram á að ekkert kolvetni sé að finna á Drekasvæðinu eða Jan Mayen-hryggnum í heild.“ 

Þá segir að það virðist vera samhljóða álit leyfishafa og ÍSOR að eina leiðin til að draga úr þeirri óvissu sem sé á túlkun rannsakenda sé að bora rannsóknarholu sem nái niður í jarðlög, sem talið sé að séu frá því fyrir uppbrot og myndun Atlantshafsins. Með því móti megi betur kanna ástand jarðlaga, líkur á olíumyndun, tilvist geymslubergs og þakbergs, og til að bæta tengingar við hljóðendurvarpsmælingar. Út frá greiningum ÍSOR og leyfishafa á mælingum og túlkunum á jarðfræði svæðisins telji Umhverfis- og orkustofnun vænlegast að slík hola yrði boruð á nyrðri hluta Drekasvæðisins, eða í lögsögu Noregs á Jan Mayen-hrygg. Miðað við mat á þykkt yngri jarðlaga þyrfti að minnsta kosti að gera ráð fyrir þriggja til sex kílómetra djúpri borholu.

Auglýsa ekki eftir umsækjendum

Loks segir í kaflanum Næstu skref að Umhverfis- og orkustofnun bendi á að þau gögn sem nú liggja fyrir séu verðmæt fyrir vísindasamfélagið til rannsókna á hafsbotninum og jarðfræðilega sögu Íslands. Þá telji stofnunin mikilvægt að aðilar og stjórnvöld sem hafi hug á frekari greiningum á tækifærum á Drekasvæðinu hafi möguleika á að leggja sjálfstætt mat á þær niðurstöður sem fram hafa komið. 

Stofnunin hyggi því á eftirfarandi tvær aðgerðir:

  • Unninn verði gagnapakki sem verði gerður aðgengilegur fyrir vísindasamfélagið og almenning með gagnsæi að leiðarljósi, í samræmi við heimildir stofnunarinnar.
  • Unnar verði tillögur að reglum og viðmiðum varðandi afhendingu frum- og mæligagna, þar með talið varðandi gjaldtöku á slíkri þjónustu, samhliða framlagningu gagnapakkans.

„Miðað við núverandi aðstæður og þekkingu telur Umhverfis- og orkustofnun ekki vera forsendur fyrir auglýsingu eftir umsækjendum um leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni, sbr. 1. mgr. 8. gr. kolvetnislaga.“

Í tilvitnuðu lagaákvæði segir að að jafnaði skuli auglýsa eftir umsækjendum áður en leyfi til rannsókna og vinnslu á kolvetni er veitt.

#hverfandi #líkur #orkustofnunar #skýrsla #umhverfis


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262944555d/ny-skyrsla-umhverfis-og-orkustofnunar-hverfandi-likur-a-ad-olia-finnist-a-drekasvaedinu

📰 Aðrar fréttir

Feðgin í fyrsta skipti saman á bæjarstjórnarfundi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Feðgin í fyrsta skipti saman á bæjarstjórnarfundi
Feðginin Hjalti „Úrsus“ Árnason og Brynja Hlíf Hjaltadóttir sóttu á dögunum saman 903. fund bæjarstjórnar Mosfellsbæjar. Þetta er nokkur tilviljun þar...
Til í að fórna borgum þar sem demó­kratar eru við völd - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Til í að fórna borgum þar sem demó­kratar eru við völd - Vísir
Ummælin lét Trump falla á fundi með stuðningsmönnum sínum í Nebraska í gærkvöldi. Þar sagði hann meðal annars að hátt olíuverð væri lítið gjald fyrir ...
Ljúfsár stund þegar Gypsy Rose fór með kornunga dóttur sína að kistu barnsföðurins - „Pabbi!“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Ljúfsár stund þegar Gypsy Rose fór með kornunga dóttur sína að kistu barnsföðurins - „Pabbi!“
Ken Urker, kærasti og barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, lést á dögunum 34 ára að aldri. Andlátið hefur vakið athygli þar sem Gypsy Rose er dæmdur morði...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Slakar reglur draga að umsóknir og breyta samsetningu hópsins
📅 06.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Slakar reglur draga að umsóknir og breyta samsetningu hópsins
Við höfum verið með miklu rýmri reglur um dvalarleyfi útlendinga hér á landi en t.d. hin Norðurlöndin. Hér á landi hefur verið hægt að fá ótímabundið ...
Einn þekktasti rannsóknarblaðamaður heims sakar stjórnvöld um að halda uppi áróðri fjölmiðla með skattfé
📅 06.10.2026 👁️ 0
Einn þekktasti rannsóknarblaðamaður heims sakar stjórnvöld um að halda uppi áróðri fjölmiðla með skattfé
Bandaríski blaðamaðurinn Michael Shellenberger segir fjármögnun stórra fjölmiðla eiga þátt í því sem hann kallar blekkingar þeirra um óeirðirnar í Fra...
Olíudraumurinn á Drekasvæðinu virðist úti
📅 06.10.2026 👁️ 2
Olíudraumurinn á Drekasvæðinu virðist úti
Litlar líkur eru taldar á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu svokallaða norðaustur af Íslandi. Þetta er niðurstaða yfirferðar U...
„Makinn er farinn“ – Guðmundur Ingi segir frá fólki sem veit ekkert hvert það á að leita
📅 06.10.2026 👁️ 2
„Makinn er farinn“ – Guðmundur Ingi segir frá fólki sem veit ekkert hvert það á að leita
Eldra fólk sem hefur nýlega misst maka hefur leitað til Guðmundar Inga Kristinssonar þingmanns eftir að hafa fengið „kaldranaleg bréf“ og kröfur frá T...
Guð­mundur Fer­tram og Fann­ey opna nýsköpunar­setur - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Guð­mundur Fer­tram og Fann­ey opna nýsköpunar­setur - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að opnunin sé hluti af fordagskrá Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle, sem hefjist formlega á fimmtudag. Ólafu...
Telur að val á næsta forstjóra Landsvirkjunar gæti komið á óvart
📅 06.10.2026 👁️ 2
Telur að val á næsta forstjóra Landsvirkjunar gæti komið á óvart
Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í síðustu viku vegna ágreinings um stjórnarhætti. Hann tók við stjórn fyrirtækisins síðla ...
„Gleðin á að vera í fyrirrúmi“ í íþróttastarfi barna
📅 06.10.2026 👁️ 2
„Gleðin á að vera í fyrirrúmi“ í íþróttastarfi barna
„Börn eru ekki bara litlir fullorðnir. Við getum ekki byrjað að afreksþjálfa börnin 10, 11, 12 ára. Það beinlínis á að vera okkar keppikefli að viðhal...
UK to make last-ditch effort to stop Israel closing East Jerusalem consulate
📅 06.10.2026 👁️ 2
UK to make last-ditch effort to stop Israel closing East Jerusalem consulate
Israel has threatened to close the consulate, which handles UK relations with Palestinians in the city, over British sanctions on Israeli settlements.
Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sann­gjarna kröfu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sann­gjarna kröfu - Vísir
Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í gær, 5. október. Hún segir: „Ég hef tekið þessi mál upp á ...
Tugþúsundir mótmæla slæmum námsaðstæðum í framhaldsskólum
📅 06.10.2026 👁️ 2
Tugþúsundir mótmæla slæmum námsaðstæðum í framhaldsskólum
Tugir þúsunda franskra framhaldsskólanema mótmæltu slæmum aðstæðum til náms í fjölda borga og bæja. Yfirfvöld segja 86 þúsund mótmæla utan höfuðborgar...
Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Gellustælar og ís­lenskar listagyðjur í París - Vísir
Sigríður Margrét, Naza Dapcevic og Karólína Kristbjörg Björnsdóttir stóðu að sýningunni, sem sameinaði ljósmyndun, fatahönnun og skartgripahönnun á ei...
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“ - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók á móti Marco Rubio í Höfða í morgun og saman héldu þau síðan til fundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem Kristrún ...
Concerns raised over major new tourism development in south Tenerife
📅 06.10.2026 👁️ 2
Concerns raised over major new tourism development in south Tenerife
Plans for a major new tourism development near Playa San Juan in Tenerife have come under scrutiny over their potential impact on the coastline and su...
Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni
📅 06.10.2026 👁️ 2
Litlar líkur að olía finnist í vinnanlegu magni
Umhverfis- og orkustofnun telur litlar líkur á að olía eða gas finnist í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu og telur ekki vera forsendur til að auglýsa e...
Vilja að refsað verði fyrir höfundarréttarbrot í kennslustofum
📅 06.10.2026 👁️ 2
Vilja að refsað verði fyrir höfundarréttarbrot í kennslustofum
Rithöfundasamband Íslands lýsir stuðningi við frumvarp menningarráðherra um að þyngja refsingar fyrir ólöglega dreifingu á sjónvarpsefni. Sambandið vi...
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
📅 06.10.2026 👁️ 2
Ozempic-hár hefur valdið heilabrotum - Er svarið að finna í nýrri rannsókn?
Þyngdarstjórnunarlyf hafa tröllriðið lyfjaumræðunni undanfarin ár. Um tíma virtust allir og amma þeirra vera á Ozempic, samheitalyfinu Wegovy eða öðru...
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
📅 06.10.2026 👁️ 2
Sakar formann Kennarasambandsins um rangfærslur og spyr hvort hann hafi brotið siðareglur
Sigvaldi Egill Lárusson, formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, segir formann Kennarasambands Íslands, Magnús Þór Jónsson, hafa farið með ...
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu - Vísir
Skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar var birt á vef stofnunarinnar í dag en hún byggir á rannsóknum og niðurstöðum leyfishafa sem tóku þátt í síðustu r...
Rubio farinn af landi brott - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Rubio farinn af landi brott - Vísir
Rubio fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Safnahúsinu við Hverfisgötu í morgun. ...
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
📅 06.10.2026 👁️ 2
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins
Endurreisn íslenska forvarnarmódelsins Fréttin6. október 2026Fréttatilkynning, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Frá undirritun viljayfirlýsingarinnar...
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku - Vísir
Tilefnið er frétt af alþjóðlegri rannsókn hugveitunnar Equimundo sem unnin var að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir karla á Norðurlöndu...
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
📅 06.10.2026 👁️ 2
Russia responds to US help offer after death of plague researcher
The US and Russia have each offered to help each other tackling infectious diseases.
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
📅 06.10.2026 👁️ 2
Vilja reisa eldflauga- og drónaskjöld um Bretland
Íhaldsflokkurinn vill koma upp loftvarnakerfi til að verja landið gegn dróna- og eldflaugaárásum. Flokkurinn hefur gefið kerfinu heitið Britannia Dome...
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
📅 06.10.2026 👁️ 2
Jeffrey Archer: Queen Camilla pays tribute to 'irrepressible' author and former politician
The bestselling author and former politician died on Monday at the age of 86.
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Dag­bók lög­reglu: Próf­laus ein­eygður öku­maður flúði af vett­vangi - Vísir
Í öðrum þættinum var sýnt frá atviki þar sem eineygður próflaus ökumaður reyndi að flýja af vettvangi. Hann var stöðvaður þar sem bifreiðin var eineyg...
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Leit að eftir­manni Harðar hefði hafist í haust eða vetur - Vísir
Hörður hefur stýrt fyrirtækinu í sautján ár og verður 64 ára í nóvember. Tilkynnt var um starfslok hans í síðustu viku og Kristín Linda Árnadóttir aðs...
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
📅 06.10.2026 👁️ 2
Tilfinningarnar tóku völdin þegar Hafdís og Ambika hittust loksins – Sjáðu myndbandið
Það var til­finn­inga­þrung­in stund á skrif­stofu SOS Barna­þorp­anna á Ís­landi þeg­ar Ambika Sharma og Guð­rún Haf­dís Karls­dótt­ir hitt­ust loks,...
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Skiptar skoðanir á hlutverki Þorgerðar í heimsókn Rubio: „Þú ert að misskilja hrapallega“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að heimsókn Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands hafi staðfest að afs...
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
📅 06.10.2026 👁️ 2
Námsmaður fær bætur vegna horfinna dekkja
Kærunefnd húsamála hefur gert leigusala námsmanns, sem leigir íbúð sem er ætluð er námsmönnum, að greiða skaðabætur vegna dekkja í hans eigu sem voru ...
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
📅 06.10.2026 👁️ 2
Paramount takes over Warner Bros in $110bn Hollywood merger
The merger of two of Hollywood's biggest movie studios comes after months of legal disputes and concern over competition.
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að út­hýsa Aþenu - Vísir
Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um...
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
📅 06.10.2026 👁️ 2
Það helsta frá blaðamannafundi Þorgerðar Katrínar og Rubios
Nánari varnarsamvinna, norðurljósin, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps og fleira var til umræðu á blaðamannafundi utanríkisráðherr...
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eight arrested after cannabis club raids in Playa de las Américas
The National Police have arrested eight people and closed two Cannabis Clubs in Playa de las Américas, South Tenerife, as part of an operation targeti...
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eiríkur Rögnvaldsson bannar og skrifar pistla um málfarsfordóma – en lækar sjálfur skot á málfar Miðflokksmanna
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, hefur árum saman barist gegn því að fólk sé dæmt eftir málfari. Í F...
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
📅 06.10.2026 👁️ 2
British national arrested in connection with RAF Fairford incident
It is the seventh arrest in connection to the incident near RAF Fairford last month.
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
📅 06.10.2026 👁️ 2
Casino Slots on the Go: A convenient way to enjoy casino entertainment while travelling
Travel changes your routine, but it does not have to change how you spend your free time. For travellers who enjoy casino entertainment, online slots ...
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Sam­talið efnismeira en áður þó tals­verð gjá sé á milli - Vísir
Í gærkvöld fengu VR og Fagfélögin heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Halla Gunnarsdóttir formaður VR...
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
📅 06.10.2026 👁️ 2
Telur að SA verði að sýna á spilin svo samningar haldi
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur að Samtök atvinnulífsins verði að koma inn af meiri ákveðni í samningaviðræður sínar við stéttarfélögin s...
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
📅 06.10.2026 👁️ 3
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
A fire at an abandoned property in Las Palmas de Gran Canaria sent a huge plume of thick black smoke into the sky yesterday (Monday), making it visibl...
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
📅 06.10.2026 👁️ 3
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Nútíminn greinir frá. Grunur er um...
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
📅 06.10.2026 👁️ 3
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu Nafn­laus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dótt­ur frétta­konu Sýn­ar hef­ur ver­ið fjar­læg...
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til ...
PCs who used Taser and baton on Donald Burgess at care home sacked
📅 06.10.2026 👁️ 2
PCs who used Taser and baton on Donald Burgess at care home sacked
A disciplinary hearing finds both officers used unnecessary force on Donald Burgess at his care home.
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
Fjallað verður um fundinn í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun....
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höf...
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 3
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann...
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
📅 06.10.2026 👁️ 3
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót Með frum­varpi fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra eru regl­ur á ís­lensk­um leigu­mark­aði færð­ar nær því sem tíðk­...