Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins sem lagt var fram á Alþingi í gær, 5. október. Hún segir:
„Ég hef tekið þessi mál upp á Alþingi með reglubundnum hætti. Það ætti ekki að vera almennur fortakslaus réttur útlendinga að fá túlk á kostnað skattgreiðenda í öllum samskiptum við hið opinbera, en við sjáum að kostnaður við túlkaþjónustu hefur vaxið mjög mikið undanfarin ár á ýmsum sviðum. Við leggjum því til meginreglu um innheimtu kostnaðar þegar túlkaþjónusta er veitt einstaklingum sem búið hafa á Íslandi í þrjú ár eða lengur. Það er sanngjörn krafa og að danskri fyrirmynd," segir Diljá Mist um frumvarpið.
Greiðsluskylda næði líka til sjúklinga
Samkvæmt gildandi lögum um réttindi sjúklinga á að tryggja sjúklingi sem ekki talar íslensku túlkun á upplýsingum um heilsufar og meðferð.
Frumvarpið myndi bæta greiðsluskyldu við það ákvæði fyrir þá sem hafa búið hér í þrjú ár eða lengur. Ráðherra fengi heimild til að setja reglur um innheimtuna.
Kostnaður 1,6 milljarðar á fimm árum
Í svari Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, sem birt var á Alþingi 4. september 2025, kemur fram að heildarkostnaður heilbrigðisráðuneytisins og stofnana þess vegna túlkaþjónustu hafi verið um 1,6 milljarðar króna samtals á árunum 2020 til 2024.
Í svarinu er tekið fram að ráðuneytið hafi ekki upplýsingar frá einkarekinni þjónustu.
Undanþágur vegna laga og alþjóðlegra skuldbindinga
Almenna reglan um innheimtu ætti samkvæmt frumvarpinu ekki við þegar annað leiðir af lögum eða alþjóðlegum skuldbindingum Íslands. Í greinargerðinni segir sérstaklega að ekki yrði hreyft við reglum um túlkaþjónustu í sakamálum.
Breytingarnar taka til erlendra tungumála. Í gildandi lögum um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er ríki og sveitarfélögum skylt að tryggja öllum sem þess þurfa þjónustu á íslensku táknmáli.
Verði frumvarpið samþykkt óbreytt er lagt til að lögin taki gildi 1. janúar 2027.
Sambærileg tillaga í borgarstjórn
Sambærileg tillaga Miðflokksins um tímamörk gjaldfrjálsrar túlkaþjónustu var rædd í borgarstjórn Reykjavíkur 29. september og vísað til borgarráðs. Þar var lagt til að ríkið endurskoðaði reglurnar án þess að ákveðinn árafjöldi væri tilgreindur. Frumvarp Sjálfstæðismanna kveður hins vegar á um gjaldtöku eftir þriggja ára búsetu.