Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, telur að Samtök atvinnulífsins verði að koma inn af meiri ákveðni í samningaviðræður sínar við stéttarfélögin svo kjarasamningar geti haldið.
Nokkur ólga er eftir að VR, LÍV og fagfélögin fengu í gær heimild til þess að segja samningum upp. Skömmu áður sendu Samtök atvinnulífsins frá sér yfirlýsingu þar sem öllum ásökunum um svik af þeirra hálfu var hafnað.
Finnbjörn segir að hingað til hafi helsta útspil samtakanna verið að einstök fyrirtæki hafi lýst því yfir að þau ætli að frysta verðlag.
„Samtök atvinnulífsins eru að telja sér það til tekna, sem er réttmætt, að fyrirtæki séu að lýsa yfir að þau ætli að taka þátt í því að taka þátt í því að ná niður verðbólgu með því að halda aftur af vöruverði,“ segir hann.
„Þetta eru bara örfáir aðilar innan SA sem hafa gert þetta, þannig að það er engin þekja í þessu sem slíku,“ segir Finnbjörn sem telur nauðsynlegt að SA svari því hvað þau ætla að leggja til svo samningar haldist, annað en það sem einstök fyrirtæki hafa lýst yfir. Hann vill þó ekki gera lítið úr því að fyrirtækin hafi yfirhöfuð tekið þátt.
Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar nánast tilbúinn
ASÍ hefur farið fyrir samningaviðræðum við ríkið um þær aðgerðir sem kynntar verða til að liðka fyrir því að kjarasamningar haldist. Hann segir þær hafa gengið hægt og í þó nokkurn tíma en þær séu komnar að endamörkum.
„Það eru örfá atriði sem standa út af sem við eigum eftir að fá endanleg svör við en að öðru leyti er sá pakki bara kominn,“ segir Finnbjörn. Hann á von á því að sá pakki verði kynntur eftir að stéttarfélögin hafa ákveðið hvort segja eigi upp samningum eða ekki. Naumur tími er til stefnu en ákvörðun verður að liggja fyrir klukkan 16 á fimmtudaginn.
Óvíst hvað gerist ef samningum er sagt upp
Óvíst er hvað verður um aðgerðapakkann fari svo að samningum verði sagt upp á fimmtudaginn en Finnbjörn gerir ráð fyrir því að þeir þættir sem snúa að því að ná verðbólgu niður haldi.
„Ég á ekki von á öðru vegna þess að verðbólgan mun ekki hverfa frá okkur. Þetta er sameiginlegt verkefni okkar, ríkisstjórnar og þeirra aðila sem hafa lýst yfir að þeir séu tilbúnir til að taka þátt í því að reyna að ná niður verðbólgu eins og öll þessi fyrirtæki sem hafa verið að lýsa því yfir og sveitarfélögin og aðrir,“ segir Finnbjörn.