Francis Halzen hefur hlotið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 2026. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að Halzen hafi lagt grunn að glænýrri tegund stjörnufræði með því að nota jökulís frá Suðurskautslandinu til að nema fiseindir.
Halzen kynnti fyrst hugmyndir sínar um að nema fiseindir á Suðurskautslandinu árið 1988. Hann átti hugmyndina að Ice-Cube-fiseindaathugunarstöðinni: rúmmetra af ís sem búinn er ljósnemum sem hjálpa vísindamönnum að nema fiseindir.
IceCube-tilrauninni, sem Halzen átti frumkvæði að, lauk formlega árið 2011. Nokkrum árum síðar birtu vísindamenn rannsóknarniðurstöður um uppgötvun fiseinda sem áttu uppruna sinn langt utan sólkerfisins. Það segir Nóbelsnefndin hafa orðið til þess að leitin að uppsprettu fiseinda í alheiminum gat hafist af fullum krafti.
„Francis Halzen hefur stýrt alþjóðlegu teymi vísindamanna og verkfræðinga sem hefur fært okkur frábært rannsóknartæki. Þrautseigja hans og vísindaleg framsýni hafa rutt brautina fyrir nýja tegund stjörnufræði,“ er haft eftir Mark Pearce, formanni Nóbelsnefndarinnar í eðlisfræði, í fréttatilkynningu vegna verðlaunanna.