Vefhýsingarvefurinn 1984 ehf. varð fyrir umfangsmikilli netárás með þeim afleiðingum að öll þjónusta fyrirtækisins var stöðvuð tímabundið. Mörður Áslaugarson framkvæmdarstjóri 1984 ehf. segir að um vel skipulagða og tæknilega háþróaða árás hafi verið að ræða af hálfu fjársterkra aðila. Hann segir árásina sennilega vera á vegum þjóðríkis.
Eruð þið einhverju nær því hver gæti verið að baki þessari árás?
„Fyrstu aðgerðir sem þessir aðilar náðu að gera eftir að þeir komu sér inn fyrir var að skemma sjö vefi. Þeir vefir eiga það sameiginlegt að vera einhvers konar stuðningur við Palestínu. Við vitum náttúrulega ekki nákvæmlega hvað það þýðir að það hafi verið áherslan en það var áherslan,“ segir Mörður í samtali við Vísi.
Hann segist ekki vita hvers konar þjónustu þessar sjö umræddu síður veiti en að lénsnöfn þeirra bendi til stuðnings við Palestínu. Hann segist ekki geta fullyrt um hvort að síðurnar sem um ræðir séu innlendar eða erlendar.
„Við sjáum bara lénsnafn og þau benda til þess að þarna sé stuðningur við Palestínu.“
Leikur einhver grunur á að árásin sé á einhvern hátt tengd Ísrael?
„Við getum ekki dregið neinar ályktanir. Fólk verður náttúrulega einhvern veginn að meta það. Við sjáum bara að þetta var vel fjármagnað, þaulskipulagt og fagmenn á ferð. Þetta virðist vera hið upprunalega markmið. Svo fara þeir að reyna að gera óskunda en þá förum við að stoppa þá,“ segir hann.
Tímafrek vinna í vændum
Ýmislegt eigi eftir að koma í ljós við rannsókn málsins sem fer fram í samstarfi við CERT-IS og fyrirtækið Syndis. Um sé að ræða tímafreka vinnu.
„Þegar við stöðvuðum netaðgang að okkar kerfum þá vorum við að búa okkur til frið til þess að þrífa eftir þennan sóða. Við höfum bara verið að því með Syndis. Þeir standa sig vel og þeir þrífa og skúra og skrúbba. Það gengur mikið undan þeim.“
Starfsmenn 1984 undirbúi nú að setja þjónustu viðskiptavina aftur í loftið en fyrst þurfi að fá grænt ljóst frá Syndis en aðaláherslan sé á að netsvæðið og gögn viðskiptavina séu örugg. Notendur og vefir skipti þúsundum en bæði hýsir fyrirtækið vefsíður, tölvupósta fólks og svokallaða sýndarþjóna (e. VPS).
Óviðeigandi að lofa upp í ermina á sér en vonast til að opna fyrir kerfi bráðlega
Þrjótunum hafi tekist að ná fótfestu í kerfum 1984 en Mörður segir árásina aldrei hafa náð djúpt en fyrirtækið hafi strax orðið vart við árásina.
„Þannig að þeir hafi komist inn fyrir þá gerðu þeir ósköp lítið annað en að setja búnaðinn sinn á sinn stað. Við fjarlægðum hann meira og minna jafnóðum en við viljum vera alveg öruggir um það að það sé ekkert eftir af þessu drasli þeirra þegar við förum í loftið aftur.“
Enn sé óljóst hvenær verði hægt að opna aftur fyrir kerfi 1984. Fyrirtækið bindi vonir við að það skýrist nánar um helgina.
„Við viljum ekki lofa upp í ermina á okkur. Okkur finnst það óviðeigandi. Við vonumst eftir því að geta svarað hvað varðar tölvupóstaþjónustuna í dag og aðra þjónustu sem heitir DNS, svokölluð nafnaþjónusta. Við vonumst til að þessi þjónusta komist upp núna um helgina. En við viljum ekki segja neitt ákveðið fyrr en við erum vissir um að við getum staðið við það.“