„Hvernig fæ ég kyn­hvötina aftur?“ - Vísir

„Hvernig fæ ég kyn­hvötina aftur?“ - Vísir

„Hvernig fæ ég kyn­hvötina aftur?“ - Vísir

Sæl og takk fyrir spurninguna. Það er svolítið merkilegt hvað við getum saknað þess að langa í eitthvað sem okkur langar ekki í. Virkar eins og ákveðin þversögn en þetta er mjög algengt vandamál. Sérstaklega þegar fólk er á lyfjum sem eru þekkt fyrir að hafa áhrif á kynhvötina.

Kynhvötin kemur ekki alltaf fyrst

Ein algengasta hugmyndin sem við höfum um kynlíf er að það eigi að byrja á löngun.

Okkur langar í kynlíf, við verðum æst, við stundum kynlíf og svo erum við vonandi ánægð á eftir.

Þetta er auðvitað ein leiðin sem kynferðisleg löngun getur virkað. En hún er alls ekki sú eina.

Í kynfræði er gjarnan talað um tvær tegundir kynlöngunar: sjálfsprottna löngun (spontaneous desire) og viðbragðsbundna löngun (responsive desire).

Sjálfsprottin löngun er þessi sem við þekkjum svo vel úr kvikmyndunum. Þú ert kannski að brjóta saman þvott þegar þú færð allt í einu óstjórnlega löngun til að rífa fötin utan af makanum þínum.

Viðbragðsbundin löngun virkar hins vegar öðruvísi. Þar kemur löngunin ekki endilega fyrr en eitthvað hefur þegar vakið upp kynferðislega örvun eða áhuga. Kannski byrjar þetta með kossi, snertingu, daðri eða einfaldlega því að þið eigið góða stund saman.

Þú varst ekkert sérstaklega að hugsa um kynlíf en svo kviknar eitthvað.

Og það er fullkomlega eðlilegt.

Vandinn er að mörg okkar halda að ef okkur langar ekki í kynlíf áður en eitthvað gerist, þá hljóti það að þýða að við höfum enga kynhvöt.

En stundum þarf einfaldlega að skapa aðstæður þar sem löngunin getur kviknað.

Það þýðir þó alls ekki að þú eigir að stunda kynlíf sem þig langar ekki í í þeirri von að löngunin láti sjá sig. Það er stór munur á því að vera opin fyrir því að kanna hvort löngun vakni og því að þrýsta á sjálfa sig að gera eitthvað sem maður vill ekki.

Það er erfitt að vera gröð þegar maður er örmagna

Þú nefnir tvennt sem mér finnst sérstaklega mikilvægt í spurningunni þinni. Annars vegar ertu á lyfjum sem bæla kynhvötina og hins vegar lifirðu mjög annasömu lífi.

Þetta er eiginlega uppskrift að því að kynhvötin fari í langt frí án þess að láta vita hvenær hún ætlar að koma aftur.

Ýmis lyf geta haft áhrif á kynlöngun, örvun og fullnægingu. Þetta eru raunverulegar líkamlegar aukaverkanir sem ekki er einfaldlega hægt að hundsa eða hugsa sig út úr.

Þess vegna myndi ég byrja á því að ræða við lækninn sem ávísaði lyfjunum. Stundum er hægt að breyta skömmtum, skipta um lyf eða finna aðrar leiðir til að draga úr kynferðislegum aukaverkunum. Það fer auðvitað eftir því hvaða lyf þú tekur og hvers vegna.

En svo er það hitt. Þetta annasama líf sem þú nefnir.

Við lifum í samfélagi þar sem við eigum að vera góðir starfsmenn, góðir foreldrar, góðir makar, dugleg í ræktinni, með hreint heimili, heilbrigðan mat á borðum og helst einhver áhugamál líka.

Og svo eigum við að vera ótrúlega kynferðislega spennt þegar við loksins leggjumst upp í rúm klukkan ellefu á þriðjudagskvöldi.

Það er nú kannski svolítið mikið ætlast til.

Kynferðisleg löngun þarf ekki alltaf fullkomna slökun, en langvarandi streita, þreyta og andlegt álag geta sannarlega gert henni erfitt fyrir.

Ef heilinn er upptekinn við að muna eftir tannlæknatímanum, greiða reikningana, skipuleggja barnaafmæli og muna eftir ruglusokkadegi í leikskólanum er kannski ekki mikið pláss eftir fyrir erótískar fantasíur.

Hættu að leita að bensíngjöfinni og skoðaðu bremsurnar

Ein af mínum uppáhaldshugmyndum í kynfræði kemur úr svokölluðu tvíþættu stjórnlíkani kynferðislegrar svörunar (e. dual control model).

Í mjög einfölduðu máli má segja að kynferðisleg örvun hafi bæði bensíngjöf og bremsur.

Bensíngjöfin er allt það sem kveikir á þér. Snerting, fantasíur, ákveðnar aðstæður, lykt, orð, minningar eða hvað sem það nú er sem þér finnst kynferðislega spennandi.

Bremsurnar eru hins vegar allt það sem dregur úr lönguninni. Streita, þreyta, áhyggjur, óöryggi, verkir, samskiptavandamál, lyf eða tilfinningin um að einhver sé að bíða eftir því að þú verðir loksins til í kynlíf.

Og hér kemur það áhugaverða.

Við erum oft svo upptekin af því að reyna að stíga fastar á bensíngjöfina að við gleymum alveg að athuga hvort við séum með handbremsuna á. Þá fer bíllinn auðvitað ekkert áfram.

Við kaupum ný undirföt, reynum að skipuleggja rómantískt kvöld eða ákveðum að nú ætlum við sko að stunda meira kynlíf.

En ef við erum ennþá örmagna, undir álagi og með hausinn fullan af áhyggjum er ekkert víst að þetta virki.

Stundum er besta leiðin til að auka kynhvötina nefnilega ekki að bæta einhverju við heldur að taka eitthvað í burtu.

En hvað geturðu þá gert?

Ég myndi byrja á því að taka pressuna af.

Ekki gera það að verkefni að verða aftur jafn gröð og þú varst þegar þið kynntust. Ekki ákveða að þið verðið að stunda kynlíf þrisvar í viku og alls ekki fara að mæla árangurinn í fjölda samfara.

Byrjaðu frekar á því að velta fyrir þér hvað vekur hjá þér vellíðan, nautn og áhuga.

Hvenær líður þér vel í eigin líkama? Hvenær finnst þér þú aðlaðandi? Hvað fannst þér kynferðislega spennandi áður fyrr? Hefur það breyst?

Og kannski mikilvægast af öllu: Hvað myndirðu vilja upplifa ef þú værir ekki að hugsa um væntingar neins annars?

Þú getur líka prófað að gefa þér tíma til að kanna eigin kynverund án þess að maðurinn þinn komi þar nokkuð við sögu.

Það gæti verið með sjálfsfróun, erótískum bókmenntum, fantasíum eða einfaldlega því að gefa þér tíma til að finna hvað þér finnst gott.

Alls ekki til þess að fá fullnægingu eða standa þig í einhverju heldur vegna þess að kynferðisleg nautn á líka að vera eitthvað sem þú færð að eiga sjálf.

Með manninum þínum myndi ég svo mæla með að þið prófuðuð að skapa meiri nánd án þess að kynlíf sé endilega á dagskrá.

Kyssist. Knúsist. Farið saman í sturtu. Nuddið hvort annað. Daðrið.

Og gerið það án þess að annar aðilinn þurfi að velta því fyrir sér hvort hvert einasta knús sé í raun boð um samfarir.

Það er nefnilega ótrúlega erfitt að njóta snertingar ef maður er stöðugt að hugsa um hvert hún eigi að leiða.

Þú átt ekki að þurfa að langa í kynlíf fyrir einhvern annan

Það er eitt í spurningunni þinni sem mig langar sérstaklega að staldra við.

Þú segir að þig langi að endurvekja kynhvötina fyrir sjálfa þig og að sjálfsögðu fyrir manninn þinn.

Það er mjög fallegt að þú viljir rækta kynferðislega nánd í hjónabandinu. Kynlíf getur verið dásamleg leið til að tengjast makanum sínum og það er ekkert óeðlilegt við að sakna þess.

En mig langar líka að hvetja þig til að setja sjálfa þig í fyrsta sæti í þessu ferli.

Ekki vegna þess að þarfir mannsins þíns skipti engu máli heldur vegna þess að kynhvöt sem er byggð á skyldurækni er sjaldnast sérstaklega skemmtileg.

Ef meginmarkmiðið er að langa í kynlíf svo makinn verði ánægður getur löngunin auðveldlega breyst í enn eitt verkefnið á verkefnalistanum.

Og það er ekki sérlega kynþokkafullt að vera með kynlíf á sama lista og að kaupa klósettpappír og panta tíma í dekkjaskipti.

Þú átt skilið að upplifa kynferðislega nautn vegna þess að hún er góð fyrir þig. Vegna þess að þig langar að finna fyrir henni.

Þannig í staðinn fyrir að spyrja þig „Hvernig fæ ég mig til að vilja meira kynlíf?“ nálgastu þetta frekar með hugarfarinu „Hvernig get ég skapað meira pláss fyrir nautn í lífinu mínu?“

Gangi þér ótrúlega vel!

#aftur #hvernig #kynhvötina #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262965610d/-hvernig-fae-eg-kyn-hvotina-aftur-

📰 Aðrar fréttir

Kristrún sleggja: núll eða kosningar
📅 21.11.2026 👁️ 2
Kristrún sleggja: núll eða kosningar
Kristrún sleggja: núll eða kosningar Fréttin21. nóvember 2026Innlent, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Á þriðja mánuði ríkisstjórna...
Hæðir húsanna í Silfursmára enn ó­á­kveðnar - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Hæðir húsanna í Silfursmára enn ó­á­kveðnar - Vísir
Klasi stendur að áformum um íbúðar- og atvinnuhúsnæði á bílastæðalóð sunnan við Smáralind. Heimilt er að byggja allt að fimm hæða há hús samkvæmt gild...
Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin
📅 21.11.2026 👁️ 1
Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin
Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, varar við því að borgin selji frá sér mikilvæga innviði og segir að ekki eigi að líta á e...
Samninga­við­ræður á COP31 í pattstöðu - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Samninga­við­ræður á COP31 í pattstöðu - Vísir
Loftslagsráðstefnan fer fram í Tyrklandi og hófst í síðustu viku. Tíu manna opinber sendinefnd fór fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar á meðal Jóhan...
Opnar sig um krabba­meinið - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Opnar sig um krabba­meinið - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá. Myndin er sögð afar persónuleg en hún nefnist Heal og verður sýnd á BBC þann 29. nóvember.  „Það breytir manni líkam...
Fengið á­bendingar um myndir af fólki að keyra - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Fengið á­bendingar um myndir af fólki að keyra - Vísir
Fyrsta færsla reikningsins birtist í lok ágúst og eru þær orðnar 75 talsins. Sú nýlegasta var birt í dag. Allar færslurnar eru nærmyndir af ökumönnum ...
Drónaárás á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa
📅 21.11.2026 👁️ 2
Drónaárás á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa
Drónaárás var gerð á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki í morgun. Finnski herinn greindi frá þessu í tilkynningu og sagði á...
Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar
📅 21.11.2026 👁️ 2
Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar
Framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins segir breytingar á leiðakerfi Strætó minniháttar í stóra samhenginu. Ferðirnar sem felldar v...
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn
📅 21.11.2026 👁️ 1
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn Fréttin21. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pútín, f...
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember
📅 21.11.2026 👁️ 1
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember Fréttin21. nóvember 2026Innlent, SamgöngurLeave a Com...
Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“
📅 21.11.2026 👁️ 1
Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“
Í „Spurningu dagsins“ fær forvitni fólks á öllum aldri að ráða ferðinni. Rannsóknarhópurinn að baki VAL vill með stuttum myndböndum gefa almenningi fo...
Af­sakið hlé: Tækni­legir örðug­leikar og heims­endir - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 1
Af­sakið hlé: Tækni­legir örðug­leikar og heims­endir - Vísir
Í vikunni var spáð svokölluðum stafrænum heimsenda en þegar dagurinn rann loks upp á þriðjudaginn gerðist auðvitað ekkert. Áhyggjur fólks eru þó ekki ...
Lögreglan lýsir eftir Nikulási
📅 21.11.2026 👁️ 3
Lögreglan lýsir eftir Nikulási
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni sem er 72 ára. Nikulás er rúmir 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Í tilkynningu frá ...
Nafn mannsins sem lést í Breiðholti
📅 21.11.2026 👁️ 2
Nafn mannsins sem lést í Breiðholti
Maðurinn sem lést í átökum við gatnamót Austurbergs og Hraunbergs í Breiðholti aðfaranótt 1. nóvember hét Alexander Prince.Vísir greinir frá þessu en ...
Á­herslan hafi verið á síður sem tengjast Palestínu - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 1
Á­herslan hafi verið á síður sem tengjast Palestínu - Vísir
Vefhýsingarvefurinn 1984 ehf. varð fyrir umfangsmikilli netárás með þeim afleiðingum að öll þjónusta fyrirtækisins var stöðvuð tímabundið. Mörður Ásla...
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri
📅 21.11.2026 👁️ 1
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri Fréttin21. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Dönsk stjórnvöld hafa ...
Four taken to hospital after crash on the TF-1 in south Tenerife
📅 21.11.2026 👁️ 1
Four taken to hospital after crash on the TF-1 in south Tenerife
Four people were taken to hospital after a multi-vehicle crash on the TF-1 motorway near Las Chafiras, in San Miguel de Abona, in the early hours of t...
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa
📅 21.11.2026 👁️ 1
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa Fréttin21. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comme...
Lögreglan lýsir eftir Nikulási Snorrasyni
📅 21.11.2026 👁️ 2
Lögreglan lýsir eftir Nikulási Snorrasyni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni. Hann er 72 ára. Nikulás er rúmlega 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Ekkert hefur s...
Rúss­nesk þyrla hafi rofið finnska loft­helgi - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 2
Rúss­nesk þyrla hafi rofið finnska loft­helgi - Vísir
Atvikið átti sér stað um klukkan hálf eitt að finnskum tíma. Þyrlan fór lengst rúma fjóra kílómetra inn fyrir finnsk landamæri undan Loviisa.  Antti H...
Nafn mannsins sem lést í Breið­holti - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Nafn mannsins sem lést í Breið­holti - Vísir
Útför Alexanders var gerð frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í gærmorgun. Fjöldi ættingja og vina hafa minnst hans á samfélagsmiðlum. Krossi til minni...
Handklæði kom Hollywood-stjörnu í stórkostleg vandræði – Krafinn um 750 milljónir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Handklæði kom Hollywood-stjörnu í stórkostleg vandræði – Krafinn um 750 milljónir
Bandaríska leikaranum Stephen Baldwin hefur verið stefnt af tryggingafélagi sem krefur hann um rúmlega sex milljónir dollara, jafnvirði um 750 milljón...
Sigmundur Ernir skrifar: Fénýting forsetaembættis
📅 21.11.2026 👁️ 3
Sigmundur Ernir skrifar: Fénýting forsetaembættis
Mynd Á tveggja vikna ferð minni um Bandaríkin, fyrr í mánuðinum,
Óvæntur glaðningur beið íbúanna í póstkössunum – Enginn veit hver var að verki
📅 21.11.2026 👁️ 3
Óvæntur glaðningur beið íbúanna í póstkössunum – Enginn veit hver var að verki
Íbúar fjölbýlishúss í hollensku borginni Schiedam hafa á undanförnum dögum fengið heldur óvænta glaðninga í póstkassa sína.Að minnsta kosti tíu íbúar ...
Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli
📅 21.11.2026 👁️ 3
Miðflokkurinn á flugi – Ný könnun vekur athygli
Miðflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Maskínu og mælist nú með 15,1 prósent. Flokkurinn mældist með 13,4 prósent í október og hefur ...
El Salvador sendir yfir tvö þúsund hermenn til Haítí gegn glæpagengjum
📅 21.11.2026 👁️ 4
El Salvador sendir yfir tvö þúsund hermenn til Haítí gegn glæpagengjum
El Salvador hefur sent ríflega tvö þúsund hermenn til Haítí til að berjast við glæpagengi, eftir að fjórir salvadorskir flugvirkjar sem störfuðu með ö...
Lög­reglan lýsir eftir Niku­lási - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 5
Lög­reglan lýsir eftir Niku­lási - Vísir
Ekkert hefur spurst til hans síðan á þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn.  Nikulás er rúmir 170 sentimetrar á hæð og þéttvaxinn. Talið er líklegt a...
Réttlætir óviðeigandi hegðun dreifingu á kynferðislegu myndefni?
📅 21.11.2026 👁️ 3
Réttlætir óviðeigandi hegðun dreifingu á kynferðislegu myndefni?
Það getur varðað við hegningar- og persónuverndarlög að dreifa stafrænu efni af fólki í aðstæðum sem ættu að vera einkamál óháð því hvort þeir sem á m...
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins
📅 21.11.2026 👁️ 4
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni í kjölfar óveðursins
Afleiðingar óveðursins 14. október, þegar mikið tjón varð á Siglufirði, voru ræddar á fundi Siglfirðinga og Veðurstofunnar. Veðurstofan kynnti hvað sp...
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni vegna óveðursins
📅 21.11.2026 👁️ 2
Siglfirðingar funda með Veðurstofunni vegna óveðursins
Afleiðingar óveðursins 14. október, þegar mikið tjón varð á Siglufirði, voru ræddar á fundi Siglfirðinga og Veðurstofunnar. Veðurstofan kynnti hvað sp...
Íslendingar verða að vera vakandi fyrir mögulegum aðgerðum Rússa hér
📅 21.11.2026 👁️ 2
Íslendingar verða að vera vakandi fyrir mögulegum aðgerðum Rússa hér
Utanríkisráðherra segir tilraunir Rússa til að fá danska menn til að ráða úkraínskan rappara af dögum endurspegla alvarlega öryggisógn. Til greina kem...
Velta fyrir sér hver næsta Bond-stúlkan verði - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Velta fyrir sér hver næsta Bond-stúlkan verði - Vísir
Það kom án efa þó nokkrum á óvart að Pattinson hafi orðið fyrir valinu og gera netverjar nú góðlátlegt grín að því að leikarinn steli starfi allra ann...
Tíma­setningin engin til­viljun - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Tíma­setningin engin til­viljun - Vísir
Lögregla telur sig komna með nokkuð skýra mynd af atburðarásinni í Austurbergi umrædda nótt. Fullorðnir feðgar, sonurinn á miðjum fertugsaldri og faði...
Princess Catherine's cancer journey to be depicted in new show
📅 21.11.2026 👁️ 3
Princess Catherine's cancer journey to be depicted in new show
Catherine has spoken about how "cancer does change you" in a documentary that will be screened on BBC One on 29 November.
Fjárfestar óstyrkir yfir lækkun gervigreindarfyrirtækja í gær
📅 21.11.2026 👁️ 3
Fjárfestar óstyrkir yfir lækkun gervigreindarfyrirtækja í gær
Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum lækkuðu duglega í gær og margir greinendur skella skuldinni á gervigreindarfyrirtæki. Fjárfestar séu orðnir efins u...
Hefur séð allar 25 James Bond-myndirnar – Þessi er sú allra versta
📅 21.11.2026 👁️ 2
Hefur séð allar 25 James Bond-myndirnar – Þessi er sú allra versta
Nú þegar staðfest hefur verið að Robert Pattinson taki við hlutverki James Bond af Daniel Craig er ekki úr vegi að rifja upp rúmlega sex áratuga sögu ...
Ráðist á rúss­neskt skip á Finnska flóa - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Ráðist á rúss­neskt skip á Finnska flóa - Vísir
Finnska ríkisútvarpið Yle greinir meðal annars frá og hefur eftir finnska hernum að hann hafi orðið var við árásina í austanverðum Finnska flóa við Ey...
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum ekki eyland þó að við séum eyja
📅 21.11.2026 👁️ 3
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Við erum ekki eyland þó að við séum eyja
Utanríkismálin eru beintengd hagsmunum okkar hér innanlands. Utanríkismálin hafa verið í deiglunni allt kjörtímabilið og þegar ríkisstjórnin var myndu...
Við­reisn tapar fylgi og Miðflokkur rís - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Við­reisn tapar fylgi og Miðflokkur rís - Vísir
Í nýrri könnun Maskínu um fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi í nóvember mælist Samfylkingin stærst með 27,8% fylgi. Flokkurinn missir örlítið fylgi mill...
Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur
📅 21.11.2026 👁️ 3
Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, stendur föst á þeirri skoðun sinni að ríkið eigi að selja Landsbankann og nýta söluandvirðið til að greið...
Princess of Wales: Catherine talks about her cancer journey in new documentary Heal
📅 21.11.2026 👁️ 3
Princess of Wales: Catherine talks about her cancer journey in new documentary Heal
"There is a much, much deeper part to what a cancer diagnosis shifts in you," says Catherine in the documentary.
Zelensky says Crimean Bridge strikes 'fair response' as he meets UK's Streeting
📅 21.11.2026 👁️ 4
Zelensky says Crimean Bridge strikes 'fair response' as he meets UK's Streeting
Ukraine's president says Kyiv acted after 109 separate Russian aerial attacks on bridges in Ukraine.
Glæ­ný könnun um fylgi flokka á Al­þingi - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 5
Glæ­ný könnun um fylgi flokka á Al­þingi - Vísir
Reiknað er með að hviður nái allt að 35 metrum á sekúndu undir fjöllum sunnan- og vestantil á landinu í kvöld og þangað til á morgun. Gular viðvaranir...
Bréf Róberts Spanó sem utanríkisráðuneytið hefði átt að lesa
📅 21.11.2026 👁️ 3
Bréf Róberts Spanó sem utanríkisráðuneytið hefði átt að lesa
Erna Bjarnadóttir skrifar: Í janúar 2010, þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um Icesave-lögin var fram undan, leitaði Samband ungra sjálfstæðismanna til umb...
Missti ævisparnaðinn á einni nóttu – Það sem hann sagði eiginkonunni vekur athygli
📅 21.11.2026 👁️ 4
Missti ævisparnaðinn á einni nóttu – Það sem hann sagði eiginkonunni vekur athygli
Hollywood-leikarinn John Malkovich hefur rifjað upp hvernig hann missti nánast allan ævisparnað sinn í einu umfangsmesta fjársvikamáli sögunnar.Leikar...
Búin með fyrstu þrep til­raunarinnar í Hval­firði - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
Búin með fyrstu þrep til­raunarinnar í Hval­firði - Vísir
Rannsóknafélagið Röst stendur fyrir tilrauninni. Hún felst í því að veita útþynntri vítissódalausn út í Hvalfjörð til þess að kanna fýsileika þess sem...
Átakanlegt útkall hefur fylgt Sigurði árum saman: „Mér var ekki boðin áfallahjálp“
📅 21.11.2026 👁️ 4
Átakanlegt útkall hefur fylgt Sigurði árum saman: „Mér var ekki boðin áfallahjálp“
Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, rifjar upp átakanlegt útkall sem hefur fylgt honum árum saman. Hann segir að honum hafi...
Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
📅 21.11.2026 👁️ 3
Vikulokin: Staðan í stjórnmálunum, húsnæðismarkaðurinn og leiðtogafundur
Kafað verður í fréttamál vikunnar í Vikulokunum sem eru á sínum stað í útvarpi og á vef strax á eftir fréttum klukkan 11:00.Í fyrsta hluta þáttarins v...
Gúmmíhanski í lífræna ruslinu getur kostað sigurinn
📅 21.11.2026 👁️ 4
Gúmmíhanski í lífræna ruslinu getur kostað sigurinn
Íslenska kokkalandsliðið er í Lúxembúrg á HM í matreiðslu og ætlar sér sigur. Ísland hefur lengi verið í fremstu röð og tvívegis unnið til bronsverðla...
„Bláskógarskatturinn“: Odd­vitinn frétti af gjaldinu í fjöl­miðlum - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 3
„Bláskógarskatturinn“: Odd­vitinn frétti af gjaldinu í fjöl­miðlum - Vísir
„Ekkert símtal barst frá forsætisráðuneytinu eða atvinnuvegaráðuneytinu. Enginn hafði samband til að kynna áformin eða leita eftir sjónarmiðum sveitar...