Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni sem er 72 ára. Nikulás er rúmir 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að ekkert hafi spurst til hans síðan á þriðjudag 10. nóvember síðastliðinn. Talið er líklegt að hann haldi til í Reykjavík, einhversstaðar í Hvalfirði eða á Akranesi.
Lögreglan lýsir eftir Nikulási