Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, varar við því að borgin selji frá sér mikilvæga innviði og segir að ekki eigi að líta á einkavæðingu sem sjálfsagða lausn. Hann gagnrýnir nýjan meirihluta í Reykjavík fyrir að opna á sölu Ljósleiðarans og telur að læra megi af reynslu nágrannaþjóða.Þetta kemur fram í ítarlegri færslu sem Pétur birti á Facebook í gærkvöldi.„Á sama tíma og ýmsar þjóðir eru farnar að endurmeta einkavæðingu mikilvægra innviða er nýr hægrimeirihluti í Reykjavík að opna fyrir sölu á Ljósleiðaranum,“ skrifar hann.
Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin