Í „Spurningu dagsins“ fær forvitni fólks á öllum aldri að ráða ferðinni. Rannsóknarhópurinn að baki VAL vill með stuttum myndböndum gefa almenningi forvitnilegan fróðleik til baka og bjóða fólki að leggja vísindunum lið.„Er það satt að fólk í gamla daga hafi þvegið á sér hárið með pissi?“ spyr ung stúlka í meðfylgjandi myndbandi.Svarið kveikir aðra spurningu og þá er leitað til efnafræðings. Þannig leiðir ein spurning stundum af annarri í „Spurningu dagsins“, myndbandaröð á vegum VAL.
Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“