Fyrsta færsla reikningsins birtist í lok ágúst og eru þær orðnar 75 talsins. Sú nýlegasta var birt í dag. Allar færslurnar eru nærmyndir af ökumönnum sem virðast vera á rauðu ljósi. Um það bil 660 manns eru að fylgja síðunni.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.
Netverjar í Facebook-hópnum Beauty tips hafa ósjaldan velt því fyrir sér hver standi þar að baki. Fréttastofa leitaði viðbragða hjá Persónuvernd.
„Persónuvernd hafa borist nokkrar ábendingar vegna þessarar birtingar en stofnunin hefur ekki tekið þær til frekari rannsóknar eða tekið afstöðu til lögmætis þeirra að svo stöddu,“ segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.
Hins vegar kemur fram að berist kvörtun frá einhverjum þeirra einstaklinga sem eru á umræddum myndum geti farið svo að stofnunin taki málið nánar til skoðunar.
Almennt eigi fólk að geta ferðast um almannarými án þess að verða „viðfangsefni opinberrar umfjöllunar“ og geti myndatökur og myndbirtingar líkt og þessar farið gegn væntingum fólks um það.
Einnig segir í svari Persónuverndar að slíkar myndbirtingar geti farið gegn almennum hugmyndum fólks um eðlilega virðingu fyrir friðhelgi einkalífs annarra.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér. Fullri nafnleynd heitið.