Útför Alexanders var gerð frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í gærmorgun. Fjöldi ættingja og vina hafa minnst hans á samfélagsmiðlum.
Krossi til minningar um Alexander hefur verið komið fyrir á horni Austurbergs og Hraunbergs eins og sjá má á myndinni að neðan.
Karlmaður, jafnaldri Alexanders, sætir gæsluvarðhaldi og hefur samkvæmt heimildum fréttastofum játað í yfirheyrslu hjá lögreglu að hafa lagt til hans með hníf. Maðurinn ber fyrir sig neyðarvörn.