Loftslagsráðstefnan fer fram í Tyrklandi og hófst í síðustu viku. Tíu manna opinber sendinefnd fór fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar á meðal Jóhann Páll Jóhannsson loftslagsráðherra.
Búist er við að nýr og endanlegur samningur ráðstefnunnar verði birtur í dag en fulltrúar á ráðstefnunni ræddu samninginn í alla nótt. Í gærkvöldi lagðist hópur ríkja, undir forystu Frakklands og Panama, gegn fyrirhuguðum samningsdrögum. Það gerðu ríkin þar sem hvergi kom fram í samningnum að draga ætti úr eftirspurn heimsins eftir jarðefnaeldsneyti.
Stór hópur ESB-ríkja er hluti af áðurnefndum hópi á meðan framleiðendur jarðefnaeldsneytis undir forystu Sádi-Arabíu þrýsta á að klausan um að draga úr eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti verði fjarlægð úr samningnum.
„Það er óásættanlegt að halda COP eða samþykkja yfirlýsingu þar sem jarðefnaeldsneyti er ekki einu sinni nefnt og við munum ekki sætta okkur við það,“ sagði Juan Carlos Navarro, umhverfisráðherra Panama, samkvæmt umfjöllun BBC.
Talið er að ein tillagan sé að klausan um jarðefnaeldsneyti verði haldið utan samningsins gegn því að Sádi-Arabía og önnur olíuríki skuldbindi sig til þess að 35 prósent af orkunotkun þeirra komi frá rafmagni fyrir árið 2035.
Jörðin hlýnar enn
Þá er hópur Afríkuríkja sem berst fyrir skuldbindingum um aukið fé til aðlögunar. Í fyrri útgáfum samningsins stóð að auka ætti fé til aðlögunar í 120 milljarða dala fyrir árið 2035 en hefur það núna verið fjarlægt.
„Við komum ekki hingað til að betla, við komum til að krefjast þess sem okkur ber með réttu fyrir fólkið okkar, sem ber hitann og þungann af mannlegum athöfnum þróaðra ríkja,“ sagði Zanetor Agyeman Rawlings, umhverfisráðherra Gana og formaður samningahóps Afríkuríkja.
Þrátt fyrir ósætti um ákveðna hluti samningsins er í fyrsta skipti viðurkennt að markmiðið um að halda hlýnun jarðar undir 1,5 °C hafi ekki náðst. Heimurinn sé að ganga inn í tímabil sem nefnist „yfirskot“. Vísindamenn hafa varað við því að með þessu muni milljónir fleiri verða berskjaldaðar fyrir hækkun sjávarborðs og miklum hita.