Breska ríkisútvarpið greinir frá. Myndin er sögð afar persónuleg en hún nefnist Heal og verður sýnd á BBC þann 29. nóvember.
„Það breytir manni líkamlega en það sem krabbameinsgreining hreyfir við innra með manni ristir miklu, miklu dýpra,“ segir Katrín í fyrstu brotunum sem birt hafa verið úr heimildarmyndinni og finna má á BBC.
Í stiklunni sést Katrín ganga svokallaða þriggja tinda áskorun fyrr á þessu ári, en hún felst í því að klífa hæstu tinda Englands, Skotlands og Wales á einum sólarhring.
Katrín greindi frá krabbameinsgreiningunni í október árið 2024 og sagðist þá ganga undir viðeigandi meðferð en meinið uppgötvaðist þegar hún gekkst undir aðgerð á kviðarholi í janúar sama ár.