Framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins segir breytingar á leiðakerfi Strætó minniháttar í stóra samhenginu. Ferðirnar sem felldar verði niður séu lítið notaðar og geri að verkum að hægt sé að bæta þjónustu annars staðar.
„Við fórum í handtalningar, bara töldum farþega um borð meðal annars og byggðum þetta líka á reynslu okkar sérfræðinga. Þarna sáum við tækifæri til þess að breyta þjónustu þannig að við gætum náð fram sparnaði. Þarna væri í raun ekki þörf á þessari þjónustu sem að skapar okkur þá svigrúm til að auka þjónustuna. Heilt yfir er þjónustan að aukast heilmikið,“ segir Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. voru stofnaðar í september í fyrra. Félagið tók við rekstri strætisvagna 1. júlí og mun reka borgarlínuna þegar hún hefur akstur.
Davíð segir þjónustu Strætó hafa verið aukna haustið 2025 í kjölfar uppfærslu samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Þá hafi þjónusta verið aukin í haust og muni halda áfram að aukast með sérrýmum borgarlínu. Þau fyrstu verði tekin í notkun strax næsta sumar.
Breytingarnar haldi ekki aftur af gjaldskrárhækkunum
Davíð telur ekki að þjónustuskerðingin á völdum leiðum 1. desember verði til þess að hægt verði að halda aftur af gjaldskrárhækkunum Strætó.
„Yfirleitt hafa verðin verið hækkuð í samræmi við vísitölu um mitt ár og um áramót og við eigum eftir að meta það,“ segir Davíð.
„Satt að segja, ef við megum kalla það strætóvísitöluna, hún er að hækka talsvert mikið meira en vísitala neysluverðs. Olíuverð er að hækka mjög mikið og laun auðvitað fara hækkandi hjá öllum, þar á meðal hjá okkur og okkar verktökum. Þannig að ef við ætlum að halda sama þjónustustigi þá verðum við að hækka verð eitthvað en við eigum eftir að sjá það hversu mikið það verður.“