Í vikunni var spáð svokölluðum stafrænum heimsenda en þegar dagurinn rann loks upp á þriðjudaginn gerðist auðvitað ekkert. Áhyggjur fólks eru þó ekki ástæðulausar. Í síðustu viku varð atburðarás sem olli ugg meðal þó nokkurra en hellti líka olíu á eld samsæriskenningarsmiða. Umfjöllunina má sjá í þættinum hér að neðan en hún hefst eftir um níu mínútur.
Á rúmum sólarhring sagði forstjóri eins stærsta tæknifyrirtækis heims af sér vegna framhjáhalds með meintum njósnara, Microsoft fór á hliðina, öll flugumferð í Bandaríkjunum var stöðvuð og Neyðarlínan hér á landi lá niðri. Og allt gerðist þetta föstudaginn þrettánda, sem verður að teljast ótrúleg tilviljun.
Áhyggjur fara vaxandi víða og þar hjálpar ekki upplýsingaóreiða um yfirvofandi hamfarir. Á samfélagsmiðlum mátti sjá ýmis myndbönd og fullyrðingar sem vöruðu við því að tölvuþrjótar ætluðu sér að ráðast á helstu innviði og lama kerfið. Tækifærissinnar á netinu hvöttu fólk til að taka allt sitt fé af bankareikningum og kaupa alls konar þjónustu.
Þessi heimsendaspá gekk svo langt að yfirvöld í Kasakstan neyddust til að senda frá sér yfirlýsingu þess efnis að engar sannanir væru til staðar um raunverulega hættu. Ráðherra frá Kasakstan þurfti meira að segja að svara fyrir málið.
Þessar sögusagnir reyndust nokkuð langsóttar og áttu rætur sínar að rekja, eins og svo margar góðar samsæriskenningar, til samfélagsmiðilsins X. Í einni fyrstu færslunni um meintan heimsendi sagði notandinn að hann væri fullviss um að rafmagnsleysi myndi tröllríða heiminum 17. nóvember og sagði því til stuðnings að hann hefði rætt við “gáfaðasta mann sem hann þekkir” sem hefði fullvissað sig um það. Þetta eru svipuð rök og undirritaður notaði eftir að hafa keypt í útboði Bláa lónsins. Bara grín, eins og flestir keypti þáttastjórnandi ekki í útboðinu.
Just got off the phone with the most intelligent person I know. He said this is COVID 2.0. Everything on the internet is going to get hacked. One by One. It'll start affecting people close to you and one day a big bank will get penetrated and their data will be wiped clean. Thousands of accounts will show $0 and there will be no way of recovering their true balance. When this happens we will go on grid lock down. They will shut down the internet all over the world for 3 months to patch every single exploitable bug with the help of super advanced AIs. This will cause mass panic and chaos. You need to stock up on food, water, gold, silver, guns, ammo, and cash. ASAP. Rumors are that this global shutdown will start on November 17th.
— Shibo (@GodsBurnt) October 31, 2026
17. nóvember virðist hafa orðið fyrir valinu fyrir endalok siðmenningarinnar eftir að Almannavarnastofnun Bandaríkjanna (FEMA) tilkynnti að ráðist yrði í prófun á neyðarviðvörunarkerfi ríkisins sem fór fram í sjónvarpi og útvarpi og tók um mínútu án trafala. Einnig byggðu netverjar á öðrum mjög haldbærum sönnunargögnum, með öðrum orðum á Simpsons þætti.
En þetta er bara eitt dæmi um hvernig upplýsingaóreiða breiðir úr sér þar sem markmið þeirra sem standa á bak við hana virðist oftar en ekki vera að hvetja fólk til að kaupa rafmyntir. Tilefni til að minna á hið gamalkunna að treysta ekki ókunnugum í blindni.
En þótt þessi dómsdagsspá hafi reynst tóm þvæla þá eru áhyggjur fólks ekki að ástæðulausu. Viðburðir föstudagsins þrettánda voru til dæmis fullkomnir til að hella olíu á eld samsæriskenningarsmiða.
Stöðvun flugumferðar reyndist vera vegna kerfisuppfærslu í fjarskiptabúnaði sem var greinilega áður á svokölluðum floppy-diskum sem ég undirritaður er of ungur til að geta útskýrt hvað er. Bilunina hjá Microsoft mátti rekja til hugbúnaðargalla. Á þeim nótum vil ég að við hugsum öll fallega til hugbúnaðarsérfræðinga sem hafa verið að minna okkur á að slökkva og kveikja á tækjunum okkar í áratugi.
Eins og áður segir má sjá alla umfjöllunina um málið í spilaranum hér að ofan en þar var almenningur hvattur til að hafa auðvitað varann á. Gott er að undirbúa sig fyrir það versta en vonast eftir því besta. Mikilvægt sé að geta andað í magann og notið líðandi stundar þrátt fyrir ólgutíma.