Atvikið átti sér stað um klukkan hálf eitt að finnskum tíma. Þyrlan fór lengst rúma fjóra kílómetra inn fyrir finnsk landamæri undan Loviisa.
Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, segir að meint lofthelgisbrot tengist hugsanlega björgunar- eða eftirlitsaðgerðum vegna flutningaskips sem skemmdist í Finnska flóanum.
Varnarliðið og landamæragæslan vinna að málinu. Landamæragæslan fer með rannsókn málsins.