Kristrún sleggja: núll eða kosningar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Á þriðja mánuði ríkisstjórnar Kristrúnar, í febrúar 2025, lækkaði verðbólgan. Fór úr 4,6 prósent í 4,2. Stjórnarsinnar stigu stríðsdans í umræðunni. Sleggja Kristrúnar forsætis á vexti og verðbólgu svínvirkar. Eins mánaðar lækkun verðbólgu var tálsýn. Strax í næsta mánuði jókst dýrtíðin. Viðvarandi er hagstjórnarvandi með tilheyrandi háum stýrivöxtum.
Sleggja Kristrúnar varð til í auglýsingu Samfylkingar fyrir síðustu þingkosningar. Myndmálið er sterkt, ekki síst fyrir mótsögnina. Fíngerð ung kona slengir á harða fyrirstöðu stórri sleggju. Undirmeðvitund kjósenda túlkaði myndefnið eins og til var ætlast. Hér væri ekki á ferðinni einn enn linkulegi vinstrimaðurinn heldur hagfræðinagli úr Garðabæ er léti hendur standa frammi úr ermum með Breitling-úr á vinstri úlnlið.
Sleggjumyndmálið varð Kristrúnu fjötur um fót er verðbólgan hélt sínu striki. Forsætisráðherra er sí og æ inntur eftir rothöggi á drauginn sem heldur uppi háum vöxtum.
Hættan við sterka myndlíkingu í pólitík er að hún setur viðmið sem hægt er að herma upp á valdstjórnina. Kristrún er þó hvergi banginn við myndlíkingar. Nú er það stóra núllið, hallalaus fjárlög. Kristrún teiknaði stórt núll á hvíta örk í fangi fjármálaráðherra. Myndvæn framsetning á pólitískri stefnu sem ríkisstjórnin hyggst standa eða falla með.
Óhemju orka fer í að berja saman hallalaus fjárlög. Vinnan stendur yfir á alþingi fram eftir aðventunni til að skrapa saman fjármunum í núllið. Síðustu fréttir herma að sækja skuli 450 milljónir til einyrkja sem skrifa skýrslur í aukavinnu. Einyrkinn virðist feitur göltur að flá. Nema maður sé ráðgjafi utanríkisráðherra. Þá greiðir maður ekki skatta og fær verktakagreiðslur frá ríkinu, munnlegan bónus í ofanálag.
Ríkisstjórnin mun skila hallalausum fjárlögum fyrir jólahlé. En aðeins á pappírunum, réttara sagt í excel-skjölum. Veruleikinn mun sverta snyrtilegu hvítu ríkisstjórnarörkina og breyta núlli í mínustölu. Þó ekki fyrr en líður á árið og óvist er hve mínusinn verður stór. Fyrirsagnirnar um hallalaus fjárlög gætu lifað fram á vor. Ekki síst komi búhnykkur á útmánuðum með lægri verðbólgu og vaxtalækkunarferli í kjölfarið.
Til að verja hallalausan ríkisrekstur þarf sterka ríkisstjórn tilbúna í erfiðar ákvarðanir seinna hluta komandi árs. Meirihluti stjórnarinnar er tæpur eftir brotthlaup þriggja þingmanna, þar af tveggja úr Viðreisn sem er veikasti hlekkurinn. Teikn eru á lofti að annað tveggja eyðileggi hitt, Þorgerður Katrín flokkinn eða Viðreisn Þorgerði Katrínu.
Hallalaus fjárlög opna Kristrúnu og Samfylkingu kosningaglugga í vor. Viðreisn fær tvo fyrstu mánuði ársins til að ná tökum á sjálfri sér, með eða án Þorgerði Katrínu sem formann. Ef ekki ígrundar Kristrún þingrof i mars og kosningar í maí. Samfylking á sóknarfæri en Viðreisn er föst í nauðvörn. Flokkur Ingu Sæland er í aukahlutverki.
Kristrún lætur ekki í tvígang sama kjörtímabilið líma sig við myndlíkingu sem vinnur gegn henni, fyrst sleggju og svo núll. Viðurnefnið núllsleggjan gerir sig ekki í kosningabaráttu.