Drónaárás var gerð á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki í morgun. Finnski herinn greindi frá þessu í tilkynningu og sagði árásina hafa verið gerða á alþjóðlegu hafsvæði.
Skemmdir urðu á skipinu og eldur kviknaði um borð eftir árásina. Finnska strandgæslan stýrir björgunaraðgerðum og aðgerðum til að koma í veg fyrir umhverfisspjöll, að því er segir í tilkynningunni.
Samkvæmt finnska ríkisútvarpinu, YLE, setti herinn tímabundið bann við flugi yfir svæðinu og takmarkanir á skipaumferð. Að sögn yfirvalda stafar ekki hætta af skipinu.
Finnlandsflói liggur inn úr Eystrasalti milli Finnlands í norðri og Eistlands og Rússlands í suðri. Skipið, Sparta II, var á leið frá St. Pétursborg til Kalíníngrad.
Það er í eigu fyrirtækis sem rússneski herinn á og sætir refsiaðgerðum bæði í Bandaríkjunum og Úkraínu. Reuters greindi frá því 2022 að gervitunglamyndir virtust sýna að skipið hefði verið notað til að flytja loftvarnarkerfi frá Sýrlandi til Úkraínu.
Ilja Iljin, yfirmaður finnsku strandgæslunnar, sagði við Yle að strandgæslan væri ekki með nákvæmar upplýsingar um farm skipsins og gæti því ekki sagt hve mikil hætta væri á sprengingu.
„En það sem við vitum er að enn hefur ekki tekist að ráða niðurlögum eldsins.“
Hann sagði að skipið gæti jafnvel sokkið logi eldurinn stjórnlaust í langan tíma.
Petteri Orpo, forsætisráðherra Finnlands, sagði á samfélagsmiðlinum X að innrásarstríð Rússa í Úkraínu væri að breiðast út til nágrannalanda.
„Úkraína hefur fullan rétt til að svara fyrir sig.“
Rétt er að taka fram að ekki hefur enn verið staðfest hver stendur að baki árásinni.
Antti Häkkänen, varnarmálaráðherra Finnlands, segir grun um að rússnesk þyrla hafi komið inn í finnska lofthelgi í dag, aðeins nokkrum klukkustundum eftir drónaárásina á skipið.
„Grunur leikur á að rússnesk herþyrla hafi komið inn í finnska lofthelgi í dag. Atvikið gæti verið tengt björgunar- eða eftirlitsaðgerðum vegna flutningaskips sem varð fyrir skemmdum á Finnlandsflóa,“ sagði Häkkänen á X.
Í yfirlýsingu varnarmálaráðuneytisins kom fram að þyrlan hefði farið allt að 4,1 kílómetra inn á finnskt yfirráðasvæði.