Klasi stendur að áformum um íbúðar- og atvinnuhúsnæði á bílastæðalóð sunnan við Smáralind. Heimilt er að byggja allt að fimm hæða há hús samkvæmt gildandi skipulagi en nú er til skoðunar að gefa leyfi fyrir allt að tíu hæða háum húsum. Áformin eru þó enn á skipulagsstigi og áframhaldandi samráð við íbúa svæðisins er boðað.
Skipulags- og umhverfisráð Kópavogs samþykkti á mánudag að fela skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að breyttu aðal- og deiliskipulagi með hliðsjón af athugasemdum sem bárust á kynningartíma. Hjördís segir að sú ákvörðun feli ekki í sér endanlega samþykkt uppbyggingarinnar.
„Það þýðir í raun og veru að nú verður farið af stað við að gera deiliskipulag og það verður aftur kynnt og íbúar koma aftur til með að hafa hérna tækifæri til þess að koma með athugasemdir og síðan vinnum við þetta svona áfram.“
Treystu skipulaginu við íbúðakaup
Alls bárust 66 umsagnir og athugasemdir vegna kynningar áformanna. Íbúar mótmæla sérstaklega tveimur háum húsum vegna útsýnisskerðingar. Þeir telji aukningu byggingarmagns enn of mikla og hafi treyst gildandi skipulagi þegar þeir keyptu íbúðir sínar.
Þá hafa komið fram áhyggjur af skuggavarpi, vindafari, hávaða, umferð og bílastæðum. Hjördís segir að meta þurfi áhrif uppbyggingarinnar.
„Við þurfum að meta þetta allt saman, hæðir og útsýni og skuggavarp, vindur og hljóðvist og svo er þarna umferð og bílastæðamál og slíkt sem að kemur inn í þetta. Þetta þarf allt að skoðast.“
Torg og þjónusta eigi að styrkja hverfið
Hjördís segir markmiðið með breytingunum vera að bæta hverfið með torgum og almenningsrýmum.
„Þetta er mjög vinsælt hverfi og við teljum þessar hugmyndir sem að við erum vonandi að fara af stað með komi til með að styrkja hverfið og gera það ennþá betra.“
Hún segir gert ráð fyrir þjónustu á jarðhæðum og mögulega einnig á hæðum fyrir ofan. Nánari útfærsla sé eftir en þjónustan eigi að falla að hverfinu sem þegar hefur byggst upp við Silfursmára.