Fjölskyldur geta staðið frammi fyrir ólíkum fjárhagslegum þröskuldi í íþróttaiðkun barna.
Kostnaðurinn getur numið hundruðum þúsunda á ári fyrir eitt barn.
Umboðsmaður barna kynnti í gær niðurstöður verkefnis sem fólst í að tengja saman upplýsingar um skráða þátttöku barna í íþróttastarfi við gögn um félagslegar aðstæður þeirra.
Niðurstöðurnar sýna að þátttaka barna í skipulögðu íþróttastarfi eykst eftir því sem tekjur heimilis þeirra eru hærri.
Börn með erlendan bakgrunn og fötluð börn eru mun ólíklegri en önnur til að taka þátt.
Þarf að styðja betur við þá hópa sem standa höllum fæti
Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar tölur um þátttöku barna í íþróttastarfi eru teknar saman.
Niðurstöðurnar voru kynntar í gær í tilefni af alþjóðlegum degi mannréttinda barna.
Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, segir mikilvægt að taka betur utan um ákveðna hópa barna í íþróttastarfi.
„Við þurfum að styðja betur við börn með ólíkan menningarlegan bakgrunn, það er bara staðfest í þessum gögnum. Við þurfum að styðja betur við börn með fötlun og við þurfum að grípa betur þær fjölskylduaðstæður sem við köllum tekjulægri heimili.“
Að meðaltali æfir barn, að tólf ára aldri, tvær íþróttagreinar.
Anton Örn Karlsson, deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands, segir niðurstöðurnar sýna að íþróttaþátttaka barna dregst mikið saman eftir því sem þau eldast.
„Þannig við sjáum bæði að færri börn sem eru á aldrinum 13 ára og eldri eru skráð í íþróttir. Og þeim fækkar líka þá fjölda íþróttagreina sem þau eru skráð í.“
Afreksvæðing getur skýrt minni þátttöku
Ein af skýringunum getur verið áherslan á afreksstarf. Rannsóknir hafa sýnt að afreksvæðing ýti undir brottfall.
Willum Þór segir að afreksvæðing barna í íþróttum megi ekki byrja of snemma. Gleði þurfi að vera leiðarljósið.
„Við viljum að börn geti verið sem lengst í íþróttum og prófað sem flest.“
Vonir standa til að Hagstofan haldi áfram að vinna að sambærilegum greiningum. Þannig verði hægt að fylgjast með þróuninni og meta hvort aðgerðir til að auka þátttöku barna í skipulögðu íþróttastarfi skili árangri.