Umrædd kerfi eru úr ranni fyrirtækis sem heitir Idrive AI. Myndavél í framrúðunni snýr bæði út á veginn og að ökumanninum. Hún fylgist með því hvort rétti bílstjórinn sé við stýrið, hvort hann noti öryggisbelti, sé syfjaður, tali í síma, noti snjalltæki eða reyki, og hvort búið sé að hylja myndavélina.
Þegar kerfið nemur eitthvað slíkt vistast átta sekúndna myndskeið, fjórar sekúndur fyrir atvikið og fjórar eftir. Ekkert hljóð er tekið upp. Gögnin eru geymd hjá Idrive AI og Amazon Web Services.
Persónuvernd hóf athugun á fyrirtækjunum 15. apríl eftir kvörtun og ábendingar um að myndavélarnar notuðu gervigreind til að greina hegðun ökumanna. Athugunin náði aðeins til ökumanna, ekki farþega.
Gerði matið eftir á
Bus4u gerði ekki hagsmunamat fyrr en 7. júlí, eftir að kerfið var komið í notkun og athugun Persónuverndar hafin. Félagið viðurkenndi líka að hafa ekki gert mat á áhrifum á persónuvernd áður en vinnslan hófst.
Í fyrsta svari sínu sagði Bus4u að til væri skrá yfir vinnslustarfsemi og að hagsmunamat hefði verið gert, en lagði ekki fram nein gögn um það, aðeins leiðbeiningar frá endursöluaðila kerfisins. Seinna kom í ljós að skráin var ekki til og að fyrra svarið hefði byggst á misskilningi. Samkvæmt skrá sem félagið útbjó 7. júlí eru myndavélarnar í tíu bílum.
Myndavélin sem Bus4u notar getur samkvæmt vef framleiðandans þekkt andlit ökumanns til að staðfesta hver situr við stýrið. Félagið segist ekki ætla að nota slíkar lífkennaupplýsingar og Persónuvernd gat ekki slegið því föstu hvort búnaðurinn væri virkjaður. Hún kannaði það ekki frekar, enda var þegar ljóst að lögmæti vinnslunnar var ósannað.
Starfsmenn fengu upplýsingar eftir á
Starfsmenn Bus4u fengu ekki fræðslu um vinnsluna fyrr en eftir að hún hófst, og eftir að Persónuvernd hóf athugun. Þeim var ekki sagt að gögnin væru hýst hjá Idrive AI og Amazon Web Services og orðalagið var óljóst. Þar stóð til dæmis að kerfið „getur unnið myndefni og upplýsingar sem tengjast tilteknum öryggisatvikum“ og að „nákvæm virkni kerfisins getur verið mismunandi eftir uppsetningu“.
Bus4u gat heldur ekki sýnt fram á að gögnin væru örugg. Félagið sagði aðeins að fáir starfsmenn hefðu aðgang að myndefninu. Gögn frá þjónustuaðila lýstu því hvað kerfið getur gert almennt, ekki því sem Bus4u hefur sett upp. Því varð ekki séð hvernig aðgangur er skráður og eftirlit haft með honum, hvar gögnin eru vistuð eða hversu lengi þau eru geymd.
Bus4u verður að stöðva notkun kerfisins þar til fullnægjandi hagsmunamat og mat á áhrifum á persónuvernd liggja fyrir samkvæmt úrskurði Persónuverndar. Félagið þarf líka að gera vinnsluskrá, bæta öryggisráðstafanir og uppfæra fræðslu til starfsmanna. Persónuvernd sektaði félagið ekki en veitti því áminningu.
Icelandia má halda áfram
Icelandia hafði gert mat á áhrifum á persónuvernd 8. apríl 2025. Persónuvernd taldi að hagsmunir félaganna af því að auka öryggi farþega og draga úr slysum vægi þyngra en einkalífshagsmunir ökumanna, að því gefnu að önnur ákvæði persónuverndarlaga séu virt.
Stofnunin viðurkennir að kerfið sé mikil íhlutun í einkalíf bílstjóranna. Það þekkir andlit þeirra, sem teljast lífkennaupplýsingar, og þeir hafa „ekki eiginlegt val“ um hvort það er notað. Á móti kemur að eftirlitið er bundið við vinnutíma, myndefni er eytt sjálfkrafa nema kerfið nemi frávik og Icelandia hefur ekki aðgang að öðru efni. Aðgangur er takmarkaður og skráður, efnið er geymt í allt að 30 daga og engar ákvarðanir um ökumenn eru teknar eingöngu af kerfinu.
Bílstjórum var hins vegar ekki sagt að gögnin væru hýst hjá Idrive AI og Amazon Web Services, þeim var ekki tilkynnt sérstaklega um rétt til að kvarta til Persónuverndar og upplýsingarnar eru á víð og dreif í nokkrum skjölum. Icelandia á að laga það fyrir 10. desember. Engin viðurlög fylgja, enda uppfyllir vinnslan að mestu öll ákvæði laganna.