Nýr veruleiki blasir við í netöryggi með tilkomu gervigreindar, segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, netöryggissveitar Íslands. Umfangsmikil tölvuárás var gerð á vefhýsingarfyrirtækið 1984 í vikunni með þeim afleiðingum að mörg þúsund vefsíður hafa legið niðri og ekki verið hægt að senda tölvupósta.
„Þetta er árás sem undir eðlilegum kringumstæðum ætti að taka vikur en með hjálp gervigreindar gerist á þessum ógnarhraða. Í rauninni á nokkrum klukkustundum. Og það er svolítið það sem við erum að sjá í dag. Nýr veruleiki. Hver hraðinn verður gríðarlega mikill og árásir verða víðtækari með gervigreind“
Ekki er búið að leggja mat á tjón en truflanir hafa verið á þjónustu fyrirtækisins meðan verið er að greina umfang árásarinnar og tilgang. Það hafi færst í aukana erlendis að slíkar árásir séu gerðar bæði til að safna gögnum, stela gögnum og þá jafnvel nýta gögn til fjárkúgana.
Framkvæmdastjóri 1984 sagði í fréttum sjónvarps í gær að árásin hefði verið þaulskipulögð og ekki á færi margra. Magni segir fyrirtækið enn vinna við að koma kerfum í eðlilegt horf og efla þau eftir árásina. Hann segir ekki liggja fyrir hvað þeim sem gerðu árásina hafi gengið til eða hverjir hafi verið að verki.
„Það eru ákveðnar vísbendingar sem er ótímabært að greina frá. En það sem gerir líka erfiðara fyrir er að þegar gervigreindin er nýtt í slíkar árásir þá verður erfitt að sjá fótspor, hver er að verki.“
Hann segir að líka megi nota gervigreind til að efla varnir og kortleggja mögulega veikleika í tölvukerfum með því að nýta sömu tól og nýtt eru til árása.
„Þetta er svolítið kapphlaup eins og er. Við þurfum að efla varnir okkar og við þurfum að efla vöktun með kerfunum okkar og í rauninni vera á undan árásaraðilunum.“