„Elskan hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá gestum okkar og því fannst okkur tilvalið að færa hann aftur á seðilinn. Hann er nú að finna undir Fan Favourites, þar sem við höfum tekið saman drykki sem hafa notið hvað mestra vinsælda í gegnum tíðina,“ segir Heimir Morthens, rekstraraðili DRYKK.
Blaðamaður ræddi við Heimi og fékk hann til að svipta hulunni af uppskriftinni svo lesendur gætu spreytt sig á að leika listina eftir.
„Ég geri það með ánægju. Við á DRYKK bjóðum líka upp á kokteilinn Elskan, sem hefur verið vinsælasti kokteill barsins frá upphafi, á sérstöku afmælisverði alla helgina, eða 1.950 krónur,“ svarar Heimir.
Pósthús Mathöll fagnar fjögurra ára afmæli sínu núna um helgina með fjölmörgum afmælistilboðum, plötusnúðum og skemmtilegri stemningu. Samhliða afmælinu kynnir DRYKK nýjan kokteilseðil þar sem veitingastaðir mathallarinnar eru innblásturinn að drykkjunum.
Hver veitingastaður á sinn kokteil
Á DRYKK hefur verið unnið að nýjum kokteilseðli þar sem markmiðið er að tengja barinn enn betur við fjölbreytta matarmenningu Pósthúss Mathallar. Rauði þráðurinn í seðlinum er einfaldur en skemmtilegur: Hver kokteill sækir innblástur í einn af veitingastöðunum í húsinu.
„Í stað þess að horfa eingöngu til hefðbundinna kokteiluppskrifta er unnið með hráefni, bragðsamsetningar og matarhefðir sem einkenna ólík eldhús mathallarinnar. Þannig verða til drykkir sem endurspegla allt frá asískum og mexíkóskum bragðheimum yfir í ítalska matargerð og kunnuglegri norræna tóna,“ bætir Heimir við.
„Okkur langaði að búa til kokteilseðil sem væri ekki bara skemmtilegur út af fyrir sig, heldur hefði raunverulega tengingu við staðinn. Pósthús Mathöll býður upp á ótrúlega fjölbreytt úrval veitingastaða og okkur fannst tilvalið að nýta þá fjölbreytni sem innblástur í drykkina okkar,“ segir Heimir.
Nýi seðillinn er því hugsaður sem nokkurs konar bragðferðalag um mathöllina, þar sem gestir geta upplifað ólíka matar- og drykkjarmenningu undir sama þaki.
Elskan
Hráefni:
- 40 ml gin
- 20 ml St-Germain
- 60 ml óskýrður eplasafi
- 20 ml ferskur límónusafi
- 10 ml sykursíróp
- 3 skvettur af ferskjubitter (má sleppa, þar sem erfitt getur verið að finna hann)
- Klaki eftir þörfum
- 1 þurrkuð límónusneið
Aðferð:
Kælið coupe-glas.
Setjið allt hráefnið saman í kokteilhristara og hristin saman með klaka.
Tvísíð drykkinn og hellið í kælda coupe-glasið.
Skreytið með þurrkaðri límónusneið.
Berið fram og njótið.