Bókahátíðin í Hörpu fór fram í dag og fer aftur fram milli klukkan ellefu og fimm á morgun. Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, segir að hátíðina sæki vel á annað til þriðja hundrað höfunda og útgefenda.
„Hér er endalaus upplestur og bókmenntadagskrá. Hér er hægt að hitta höfundana sína, kaupa bækur, fá Bókatíðindi og bara rosaleg gleði. Við erum með sex erlenda gestahöfunda, meðal annars Jenny Colgan sem er nú mjög frægur ástarsöguhöfundur og kannski fréttnæmast af öllu er að bókin hennar í ár heitir Jólabókaflóðið í hálöndunum og skemmtilegt að þýðandinn hafi notað þetta séríslenska orð, jólabókaflóðið, í þessum titli.“
Upplestrardagskrá er á Norðurbryggju í Hörpu þar sem um 70 höfundar lesa úr verkum sínum.
„Við erum með ljóðadagskrá þar sem 20 höfundar lesa úr verkum sínum. Við erum með barnabókadagskrá sem Borgarbókasafnið sér um þar sem ég held að séu 50 barnabókahöfundar sem lesa úr verkum sínum og það er bókmenntadagskrá í dag líka. Bara ótrúlega þétt og mikil dagskrá, já. Þetta er svo skemmtilegt.“
Hún hvetur fólk til að sækja Hörpu um helgina.
„Og kannski ekki síst þá sem lesa lítið af því að ég held að þetta sé kjörinn vettvangur til að láta tendra í sér leslöngunina og kynnast lystisemdum lesturs.“