Það eru komin fjögur ár síðan hin bandaríska Kala byrjaði að grafa göng undir heimili sitt í Virginíu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið dugleg að sýna frá öllu ferlinu á TikTok og er þekkt sem „Tunnel Girl“ á miðlinum.Í nýlegu myndbandi fagnar Kala því að fjögur ár séu liðin frá því að hún byrjaði á þessu stóra verkefni. Hún útskýrir að framkvæmdirnar hafi ekki byrjað af nauðsyn, heldur hafi henni einfaldlega leiðst vegna heimsfaraldurs og viljað prófa eitthvað nýtt.Kala hefur séð mestmegnis um verkið sjálf, meðal annars að grafa, styrkja göngin og steypa.
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum