Halzen er fæddur í Belgíu árið 1944 og er prófessor við Háskólann í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann hefur leitt svokallaða IceCube Neutrino Observatory, rannsóknarstöð sem er grafin um tvo kílómetra niður í ísinn á Suðurskautslandinu.
Fiseindir gagnverka takmarkað við efni en Halzen fékk þá hugdettu að nota ísinn til þess að greina háorkufiseindir sem eiga uppruna sinn í fjarlægum vetrarbrautum. Nóbelsnefndin segir að athuganirnar á Suðurskautslandinu hafi opnað dyrnar að fjarlægum vetrarbrautum og veitt innsýn í eðli sprengistirna.
Halzen sagðist hafa efast um að hugmynd hans ætti eftir að ganga upp. Hann hefði þó haft heppnina með sér að hafa náð að gera hana að veruleika.
Fréttin verður uppfærð.