Skipverja er saknað eftir að drónum var skotið á tvö flutningaskip á Svartahafi úti fyrir ströndum Búlgaríu. Annað skipið sökk.
Rumen Nikolov, yfirmaður almannavarna í Varna, sagði í samtali við almannaútvarpið BNR að áhafnar skipsins sem sökk væri saknað. Búið er að bjarga þeim skipverjum sem voru um borð í skipinu sem enn er á floti.
Ríkisstjórn Búlgaríu hefur verið boðuð til neyðarfundar í dag vegna árásanna á skipin.
Björgunaraðgerðir eru í gangi um 150 kílómetra austur af Byala á strönd Búlgaríu. Þar er leitað að skipverjum á flutningaskipinu sem sökk.
Í gær sökk kornflutningaskip eftir að ráðist var á það með dróna í lögsögu Rúmeníu. Úkraínsk stjórnvöld sökuðu Rússa um árásina á það skip. Tveir fórust í þeirri árás.
Siglingastofnun Tyrklands sagði í síðasta mánuði að búið væri að ráðast á 226 flutningaskip frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Meirihluti þeirra árása var gerður í ár.
Fréttin hefur verið uppfærð.