Lögreglan á Suðurnesjum hvetur til þess að bætt verði inn í frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd ákvæðum um bann við internetnotkun barna við tilteknar alvarlegar aðstæður. Vísar embættið þar til mála sem varða alvarleg brot barna gegn öðrum börnum í gegnum netið og sömuleiðis til brota fullorðinna gegn börnum. Nefnir embættið sérstaklega hinn alþjóðlega 764-netníðingahóp sem snýst um alvarlegt ofbeldi gegn börnum og ungmennum í gegnum netið.
Segja tilkomu 764-hópsins kalla á lagabreytingar á Alþingi