Blaðamannafundi lokið

Blaðamannafundi lokið

Blaðamannafundi lokið

Þá er blaðamannafundinum lokið og þar með formlegri dagskrá utanríkisráðherra Bandaríkjanna hér á landi.

Blaðamannafundurinn var stuttur og snarpur og stóðst allar tímamælingar sem til stóðu.

Marco Rubio svarði því ekki beint efnislega hvort til stæði að bæta í þegar hernaðarleg uppbygging hér á landi væri annars vegar en sagði að Ísland og Bandaríkin væru áfram um að gera samkomulag og samninga um alls konar hluti sem gagnist báðum þjóðum.

Tími fríverslunarsamninga er liðinn að mati Rubios, frekar væri betra að gera tvíhliða viðskiptasamninga ríkja á milli.

Við eigum von á viðtali við Þorgerði Katrínu, utanríkisráðherra, innan skamms en Rubio veitir ekki viðtöl í heimsókninni utan blaðamannafundarins sem var að klárast.

Hallgrímur Indriðason fréttamaður RÚV spurði Rubio hvort Bandaríkin ætluðu sér meiri uppbyggingu eða viðveru á Íslandi, hvort aðild Úkraínu að NATO væri í sjónmáli og hverjar væru helstu ógnirnar sem steðji að Íslandi.

Rubio sagði aðild Úkraínu að NATO ekki á borðinu og að bandarísk yfirvöld vilji beita sér fyrir því að binda enda á stríðið. Þróunin væri því miður ekki í þá átt.

Varðandi uppbyggingu á Íslandi sagði Rubio að það yrði aldrei nema með samþykki stjórnvalda hér. Bandaríkin hefðu minnkað viðveru sína 2006 og beint athyglinni annað. Heimurinn hefði hins vegar breyst og að mikill fókus væri á norðurslóðir. Þar gegni Ísland mikilvægu hlutverki, ekki síst vegna staðsetningarinnar. Hann segir ríkin vilja ræða aukna samvinnu.

Um þær ógnir sem steðji að Íslandi sagði Rubio að þær væru ekki aðeins hernaðarlegar. Allir séu til dæmis með áhyggjur af mögulegum skemmdarverkum á sæstrengjum.

Marco Rubio hefur orð á því að blaðamönnum liggi öllum svo mikið á hjarta, hann hefði átt að skrifa spurningarnar niður, þær séu svo margar.

Fréttamaður New York Times spyr um þegar Þorgerður Katrín tók bandaríska sendiherrann á Íslandi, Billy Long, á teppið þegar Trump birti kort sem sýndi bandaríska fánann þekja Grænland og Ísland.

„Við erum ekki hér til að tala um færslur á samfélagsmiðlum,“ svaraði Rubio að bragði. Þau væru að hittast til að eiga fundi um framtíðina.

„Við ræddum málið og höfðum þegar leyst málið farsællega,“ svaraði Þorgerður. Samband ríkjanna væri gott og þau horfðu til framtíðar.

Hallgrímur Indriðason fréttamaður okkar ber fram spurningar fyrir hönd tveggja fjölmiðla, RÚV og Útvarps Sögu. Það sama verður upp á tengingnum í seinni hluta blaðamannafundarins, þegar Morgunblaðið og Sýn bera fram sínar spurningar saman.

Eftir að Rubio mærði aftur náttúrufegurðina á Íslandi minnti Þorgerður hann á að hefði séð norðurljós í gærkvöldi.

Rubio tók heilshugar undir það og sagðist fyrst hreinlega ekki viss um hvað þetta væri á himninum, norðurljós eða fljúgandi furðuhlutur.

Eftir að Þorgerður hafði lokið máli sínu og þakkað honum fyrir komuna tók Rubio til máls.

Bandaríski utanríkisráðherrann þakkaði henni hlýjar móttökur og sagði gaman að vera nú hluti af þeim fjölmenna hópi Bandaríkjamanna sem koma hingað í heimsókn. Hann sagðist skilja vel hvað ferðamenn sjái við landi, náttúrufegurðin sé einstök og landið öruggt.

Og talandi um öryggi sé Ísland mikilvægt í öryggismálum á Norðuslóðum. Þar aukist ógnin eins og öllum sé kunnugt og því sé samvinna Íslands og Bandaríkjanna áfram mjög mikilvæg í þeim efnum.

„Þið eruð ekki með her en eruð hluti af NATO og leggið ykkar að mörkum þar og það er mikilvægt,“ segir Rubio.

Ísland hefur allar götur síðan í síðari heimsstyrjöldinni lagt sitt lóð á vogarskálarnar við að viðhalda friði í heiminum, meðal annars með því að leyfa viðveru bandaríska hersins hér á landi og með því að ganga fram með góðu fordæmi, segir Rubio. Hér séu sömuleiðis leyfðar heræfingar sem og æfingar fyrir geimferðir.

Blaðamannafundurinn hófst á ávarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún þakkaði Rubio kærlega fyrir heimsóknina og sagði hana vitnisburð um góð samskipti ríkjanna. Þeim hafi tekist að koma miklu í verk í morgun.

Þá nefndi Þorgerður Katrín að ríkin hafi verið bandamenn lengi. Bandaríkin hafi til að mynda verið fyrsta ríkið til að viðurkenna sjálfstæði Íslands 1944, ríkin séu bæði stofnmeðlimir í NATO og hafi gert varnarsamning 1951.

Utanríkisráðherra Íslands sagði ríkin vinna saman daglega að öryggi á norðurslóðum og að Ísland taki hlutverk sitt þar alvarlega. Það sýni sig til að mynda í varnarstefnu landsins og samstarfi við Bandaríkin á sviði varnarmála. Hún og Rubio hafi verið sammála um það á fundi sínum í morgun að vinna áfram saman að öryggi á norðurslóðum.

Ráðherrarnir ræddu einnig nýlegan samning Bandaríkjanna við Grænland og Danmörku sem hún sagði mikilvægan fyrir heimshlutann. Þá hafi þau einnig rætt stöðuna í alþjóðamálum, allsherjarinnrásina í Úkraínu, stöðuna í Mið-Austurlöndum og samskipti við Kína.

Þau Rubio og Þorgerður Katrín eru að ganga í salinn og blaðamannafundurinn hefst innan skamms. Fjöldi fjölmiðlafólks fylgist með.

Skemmst er að minnast biðarinnar þegar leiðtogafundurinn fór fram fyrir 40 árum. Beinar sjónvarpsútsendingar frá grafkyrrum hurðarhúnum sögðu sína sögu. Nú horfum við á hurðir í Safnahúsinu og bíðum þess sem verða vill.

Hallgrímur segir að tímasetningar hafi staðist hingað til í heimsókn Rubios og vonandi verði það einnig raunin með blaðamannafundinn sem senn hefst og var á dagskrá um klukkan 10.25.

Hallgrímur Indriðason, fréttamaður okkar, boðar það að að blaðamannafundurinn hefjist senn í Safnahúsinu. Fylgist með í spilaranum hér að ofan. Sjón er sögu ríkari.

Mörgum er í fersku minni öryggisgæslan vegna komu Mike Pence, þáverandi varaforseta Bandaríkjanna, hingað til lands 2019. Jakob Bjarnar á Vísi skrifaði frétt um Vilhjálm Þór Guðmundsson, tökumann RÚV, sem var heldur brugðið þegar hann varð þess var að svo virtist sem leyniskytta væri að miða á hann við störf.

Fréttina má lesa hér.

Anna Lilja Þórisdóttir, fréttamaður, er við Hverfisgötu og segir engan leyniskyttur sjást á þökum að þessu sinni, þó viðbúnaður sé sannarlega mikill.

Dagný Hulda Erlendsdóttir er mætti til leiks og við ætlum að tvímenna á þessa fréttavakt í bili. Enda nóg fram undan. Rubio fundar nú með Þorgerði Katrínu og Kristrúnu og að þeim fundi loknum halda þau Rubio og Þorgerður blaðamannafund í Safnahúsinu. Hann verður sýndur í beinni útsendingu hér á vefnum okkar.

Fundinn sem nú stendur yfir mega fjölmiðlar þó ekki sitja en alls konar atburðir undafarinna missera setja líklega svip sinn á fundinn.

Ísland og Bandaríkin hafa verið bandamenn í áratugi. Yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland, nágrannaríki Íslands, hafa þó valdið titringi. Það gerði landakort sem Trump birti á samfélagsmiðlum 7. september einnig. Þar mátti sjá Ísland, Grænland, Kanada og Mið-Ameríku þakin bandaríska fánanum.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long sendiherra Bandaríkjanna á teppið eftir að Trump birti kortið. Eftir fundinn sagðist hún hafa sett fram skýr skilaboð af hálfu Íslands um að myndbirtingin hafi verið algjörlega óviðeigandi.

Grænland, Danmörk og Bandaríkin gerðu samning um að styrkja öryggi á norðurslóðum 18. september. Vonast er til að hann verði til þess að meiri ró færist yfir samskipti ríkjanna. Aðalatriði nýja samningsins eru eftirfarandi:

  • Bandaríkin fá að koma sér upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka þá sem fyrir er á Pituffik.
  • Tryggt er að aðilar óvinveittir Bandaríkjunum fái ekki að koma sér upp aðstöðu eða áhrifum á Grænlandi.
  • Bandaríkin fái að setja Grænland undir „Gullhvelfinguna“ svokölluðu – loftvarnarkerfi Bandaríkjanna.

Marco Rubio er kominn í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar tók á móti honum forsætisráðherrann Kristrún Frostadóttir.

Leið Rubio liggur frá Höfða og í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar er allt tilbúið fyrir komu gestsins og búið að loka Hverfisgötunni í bili fyrir annarri umferð.

Marco Rubio sagðist í gær spenntur fyrir komandi heimsókn til Íslands. Hann hefur líklega nóg að gera svo heimsókn sem þessi er aldrei tilviljun. Við spurðum Piu Hanson, forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, um tilgang heimsóknarinnar í hádegisfréttum í gær. Pia segir heimsóknina til merkis um aukið mikilvægi norðurslóða. Bandaríkin vilji sýna að þau taki þennan heimshluta alvarlega og þetta sé um leið tækifæri til að sýna fram á sterk tengsl Íslands og Bandaríkjanna.

Mikil öryggisgæsla fylgir komu utanríkisráðherrans. Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina við Höfða.

Eftir að Rubio hefur skoðað sig um í Höfða liggur leiðin í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar fundar hann með Þorgerði Katrínu, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra. Kristrún er mætt í Safnahúsið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum Ragnars Visage.

Blaðamannafundur utanríkisráðherranna hefst í Safnahúsinu klukkan 10:25 og verður í beinni útsendingu í spilaranum efst í fréttavaktinni.

Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands síðan 2021 þegar Antony Blinken, utanríkisráðherra í ríkisstjórn Joe Biden, kom hingað. Meira um það hér rétt á eftir, því heimsóknir utanríkisráðherra Bandaríkjanna eru fleiri.

David Dean Rusk, utanríkisráðherra Lyndons B. Johnson kom tvisvar hingað til lands á sjöunda áratugnum, 1964 og 1968. Síðari heimsóknin var þátttaka í utanríkisráðherrafundi NATO sem haldinn var hér á landi.

William P. Rogers, utanríkisráðherra í stjórnartíð Richard M. Nixon, kom tvisvar hingað. Í fyrra skiptið, 1972, mótmæltu íslenskir stúdentar komu hans og stóðu vörð um Árnagarð Háskóla Íslands til að meina honum inngöngu til fundar við utanríkisráðherra Íslands, Einar Ágústsson. Seinni heimsókn Rogers var svo ári síðar, 1973, í fylgd með Nixon sem fundaði með George Pompidou, forseta Frakklands, á Kjarvalsstöðum. Reyndar hafði Rogers komið einu sinni áður til landsins, árið 1956, þá einnig í fylgd með Nixon sem þá var varaforseti.

Víkur þá sögunni til utanríkisráðherrans George P. Shultz, sem var viðstaddur leiðtogafundinn í Höfða ásamt forsetanum Ronald Reagan. Það eru sem kunnugt er 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í vikunni. Shultz hafði reyndar komið tvisvar áður til Íslands, árið 1985. Þess má að lokum geta að leikarinn J.K. Simmons leikur Shultz í kvikmyndinni um leiðtogafundinn sem frumsýnd verður hér á landi í vikunni.

James A. Baker III var utanríkisráðherra í stjórn George W.H. Bush. Hann kom hingað til lands í febrúar 1989 til fundar við Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra.

Svo liðu 11 ár og næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem lagði leið sína hingað í vinnuerindum var Madeleine Albright árið 2000. Gestgjafinn þá var utanríkisráðherrann Halldór Ásgrímsson og umræðuefnið varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna.

Eruð þið ekki örugglega enn að lesa upptalningu okkar á bandarísku utanríkisráðherrunum sem hafa komið hingað? Því við erum ekki alveg búin.

Halldór Ásgrímsson var enn utanríkisráðherra þegar næsti kollegi hans mætti í heimsókn. Það var Colin Powell sem kom árið 2002.

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra George W. Bush kom til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra 2008 og forsætisráðherrann Geir H. Haarde.

Aftur liðu 11 ár milli heimsókna og Mike Pompeo, utanríkisráðherra á fyrra kjörtímabili Donalds Trump, kom til Íslands 2019 og fundaði með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra og Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í Hörpu.

Og svo var það sem sagt Antony Blinken sem kom 2021. Þá var Guðlaugur Þór enn utanríkisráðherra, en auk þess fundaði Blinken með Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands. Blinken var til viðtals á RÚV.

Í mesta bróðerni deila fjölmiðlar myndum hvor með öðrum. Meðfylgjandi myndir eru frá Eyþóri Árnasyni, ljósmyndara Morgunblaðsins.

Eins og góðum gesti sæmir skrifaði Rubio í gestabókina á Höfða og skoðaði myndir frá leiðtogafundinum fyrir 40 árum eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.

Það fór vel á með þeim Marco Rubio og Þorgerðir Katrínu Gunnarsdóttur fyrir utan Höfða.

Ljósum prýdd bílalest bandaríska utanríkisráðherrans rennir nú upp að Höfða.

Og andi leiðtogafundarins svífur enn yfir vötnum í Höfða. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er á staðnum og sendi okkur þessa skemmtisögu:

Fréttamennirnir fengu að fara inn í kjallara á Höfða til að hlýja sér aðeins. Þeir erlendu fengu sögustund frá starfsmanni um að á leiðtogafundinn fyrir 40 árum hafi fylgdarlið Gorbatjovs setið í þessum kjallara, reykt og horft á Tomma og Jenna, sem þeir höfðu líklega aldrei séð áður. Sjónvarpið og vídeótækið sem var notað er í skápnum í kjallaranum.

Fundarstaður utanríkisráðherranna tveggja í dag er engin tilviljun. Í vikunni eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða, þegar þeir Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbachev, aðalritari Sovétríkjanna hittust á sögufrægum fundi.

Það er heldur ekki tilviljun að Hollywoodmynd Michael Russell Gunn um leiðtogafundinn verður frumsýnd hér á landi. Í stiklunni í meðfylgjandi frétt má sjá leiknar svipmyndir frá fundinum góða.

Íslandsdeild Amnesty International sendi frá sér yfirlýsingu í gær í aðdraganda heimsóknar Rubio þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að gagnrýna alvarleg mannréttindabrot af hálfu stjónvalda, eins og segir í tilkynningunni.

Í yfirlýsingu Amnesty segir meðal annars;

Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að nýta heimsókn Marco Rubio til að:

  • taka niðurstöður Amnesty International um alvarleg mannréttindabrot í aðgerðum bandarískra innflytjendayfirvalda upp við utanríkisráðherrann; 
  • koma á framfæri kröfu Amnesty International um að ICE verði lagt niður þegar í stað og komið verði á innflytjendaeftirliti sem samræmist alþjóðlegum mannréttindalögum og -viðmiðum; 
  • lýsa yfir andstöðu við dauðarefsinguna og hvetja bandarísk stjórnvöld til að stöðva aftökur og vinna að fullu afnámi hennar; 
  • gagnrýna brot Bandaríkjanna gegn alþjóðlegum mannúðarlögum í tengslum við hernaðaraðgerðir í Íran og leggja áherslu á skyldu Bandaríkjanna til að vernda óbreytta borgara; 
  • kalla eftir því að þeir sem bera ábyrgð á brotum gegn alþjóðalögum verði dregnir til ábyrgðar. 

Marco Antonio Rubio er fæddur 28.maí 1971. Hann er sonur kúbverskra innflytjenda og fyrsti spænskumælandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann er mikill stuðningsmaður stjórnvalda í Ísrael og styður hömlur á innflutning frá Kína.

Rubio er fæddur og uppalinn í Miami á Flórída. Hann var þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Flórída árið 2000 og fékk sæti í öldungadeildinni 2010.

Hann freistaði þess að verða forseti Bandaríkjanna þegar hann bauð sig fram í forvali Repúblikanaflokssins 2015. Þar var hann afar gagnrýninn á mótframbjóðanda sinn, Donald Trump og þeir tókust oft harkalega á í kappræðum og annari umræðu. Trump hafði betur og varð forsetaframbjóðandi Repúblikana og svo forseti sem kunnugt er. Rubio fylkti sér svo að baki honum í aðdraganda kosninga og ekki virðist orðaskakið hafa dregið mikinn dilk á eftir sér því Trump valdi Rubio sem utanríkisráðherrann sinn á seinna kjörtímabili sínu.

„Hver hleypti hundunum út“ er spurt í laginu góða. Í Höfða kemst hins vegar enginn nema með samþykki hundanna. Búnaður fjölmiðlafólks þurfti samþykki bæði hunda sérsveitarinnar og einnig hunda öryggisliðs Rubio.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er mætt í Höfða. Tilbúin að taka á móti bandaríska starfsbróður sínum. Það fór vel á með þeim í gær þegar Þorgerður tók á móti Rubio á Keflavíkurflugvelli.

Ragnar Visage, ljósmyndari okkar, er einnig við Höfða. Allir fjölmiðlamenn sem ætla að fylgjast með dagskrá Rubio í dag, þurftu að taka daginn snemma. Það þarf að yfirfara allan búnað sem á að nota, myndavélar og allt tilheyrandi, eins og sjá má á myndum Ragnars hér að neðan.

Hiti var við frostmark í höfuðborginni í morgun og Höfði skartaði sínu fegursta í stillunni, eins og sjá má á myndinni sem Hallgrímur Indriðason tók.

Höfði er fyrsti viðkomustaður Marco Rubio í dag.

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, er staddur hér á landi. Hann fundar með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra í dag. Ég heiti Birta Björnsdóttir og í þessari fréttavakt segjum við allar helstu fréttirnar frá heimsókn dagsins. Við vonum að þið hafið af því gagn en einnig nokkurt gaman.

#blaðamannafundi #lokið


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-06-bladamannafundi-lokid-488908

📰 Aðrar fréttir

Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
📅 06.10.2026 👁️ 0
Fire breaks out near petrol station in Gran Canaria
A fire at an abandoned property in Las Palmas de Gran Canaria sent a huge plume of thick black smoke into the sky yesterday (Monday), making it visibl...
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
📅 06.10.2026 👁️ 1
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ
Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Nútíminn greinir frá. Grunur er um...
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
📅 06.10.2026 👁️ 0
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu
DV fjarlægir nafnlausan skoðanapistil um fréttakonu Nafn­laus pist­ill um Elísa­betu Ingu Sig­urð­ar­dótt­ur frétta­konu Sýn­ar hef­ur ver­ið fjar­læg...
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er - Vísir
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, er einn í framboði til varaformanns enn sem komið er. Framboðsfrestur er þó þar til ...
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Ögur­stund í kjara­málum og Marco Ru­bio í heim­sókn - Vísir
Fjallað verður um fundinn í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun....
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa - Vísir
Í gær greindi fréttastofa frá því að Miðflokkurinn hefði gengið til liðs við meirihlutann varðandi tillögu um breytingar á gatnamótum Bæjarháls og Höf...
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Rubio: Ís­land í miðjunni - Vísir
Rubio mætti með Þorgerði á blaðamannafund eftir fund hans með Þorgerði í Höfða og síðan Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í morgun. Þar hóf hann...
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
📅 06.10.2026 👁️ 0
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót
Leigubremsa: Mikilvæg kjarabót Með frum­varpi fé­lags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra eru regl­ur á ís­lensk­um leigu­mark­aði færð­ar nær því sem tíðk­...
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
📅 06.10.2026 👁️ 1
Hluti foreldrahópsins á erfitt með að venjast símafríi barnanna
Örfáir hnökrar uppgötvuðust eftir að símasfrí var innleitt í grunnskóla en að flestu leyti hefur innleiðingin gengið farssællega að sögn skólastjóra G...
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Grétu af gleði þegar þær hittust loksins - Vísir
SOS barnaþorpin birtu í gær myndband af fagnaðarfundum kvennanna tveggja. „Það er komið að risastórri stund hjá okkur hjá SOS barnaþorpunum. Þið munið...
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
📅 06.10.2026 👁️ 0
Unglingsstúlka stakk átta með hnífi
Fimmtán ára gömul tyrknesk stúlka réðst á og særði átta stúlkur í skóla í Istanbúl í morgun. Hún var vopnuð hnífi og er sögð hafa lagt til nemenda og ...
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
📅 06.10.2026 👁️ 1
Lagði grunn að glænýrri tegund stjörnufræði
Francis Halzen hefur hlotið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði 2026. Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að Halzen hafi lagt grunn að glænýrri tegund stjö...
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
📅 06.10.2026 👁️ 2
Hvað varð um „fallegustu stúlku veraldar“? - Svona lítur hún út í dag
Thylane Lena-Rose Blondeau var aðeins tíu ára gömul þegar hún prýddi síður Vogue og var kölluð „fallegasta stúlka veraldar“.Thylane er dóttir franska ...
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
📅 06.10.2026 👁️ 2
Byrjaði að grafa göng undir húsið sitt fyrir 4 árum
Það eru komin fjögur ár síðan hin bandaríska Kala byrjaði að grafa göng undir heimili sitt í Virginíu í Bandaríkjunum. Hún hefur verið dugleg að sýna ...
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 2
Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu - Vísir
Óskað er eftir 65 milljónum króna í fjárlögum næsta árs vegna kaupanna. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis frá 5. ok...
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
📅 06.10.2026 👁️ 2
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem lifir í hugum fólks er hugmynd sem það fékk úr fyrirsögnum“
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrir...
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
📅 06.10.2026 👁️ 1
Childminder who left 27 children alone in her home pleads guilty to neglect
Amanda Mathewson, 55, pleaded guilty to neglect and abandoning children in her care at Kirkcaldy Sheriff Court.
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
📅 06.10.2026 👁️ 1
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma
Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluumdæmum landsins í þrjú falla í grýttan jarðveg í Fjarðabyggð þar sem bæjarráð leggst alfarið gegn því að y...
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
📅 06.10.2026 👁️ 1
Northern France: At the scene of protests on the streets of Lille
The demonstrators are calling for better government investment in high schools.
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Krist­rún valdi Victoriu Beckham - Vísir
Hún valdi dökkgrænan kjól sem er frá tískuhúsi ofurstjörnunnar Victoriu Beckham til að taka á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.  Kris...
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 1
Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir
Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir þróunina hafa verið hraða og að ánægðir eigendur saltvatnspotta séu líklega besta aug...
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
📅 06.10.2026 👁️ 1
'Ghost particles' from space telescope wins 2026 Nobel Prize in Physics
Belgian physicist Prof Francis Halzen has won for his pioneering work on an observatory that detects particles from space.
One million UK people who have never smoked are now vapers
📅 06.10.2026 👁️ 1
One million UK people who have never smoked are now vapers
Latest statistics also show, for the second year in a row, more over-16s vape than smoke.
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
📅 06.10.2026 👁️ 4
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins
Greiddu 2,2 milljónir vegna heimsóknar Sjálfstæðisflokksins Fram­kvæmda­stjóri banda­rísks fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæk­is seg­ir það hafa greitt fyr­i...
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
📅 06.10.2026 👁️ 4
Óeirðarseggir kveiktu í skóla meðan nemendur og blaðamenn voru ennþá inni
Grímuklæddir óeirðaseggir kveiktu eld við inngang Vauquelin framhaldsskólans í París að morgni mánudagsins 5. október á meðan um hundrað nemendur voru...
Former German spy chief arrested for espionage and treason
📅 06.10.2026 👁️ 1
Former German spy chief arrested for espionage and treason
August Hanning is accused of obtaining classified information for a foreign power.
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“
Söngkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, bað nágrannakonu sína afsökunar þegar hún vann níunda sporið í AA-samtökunum. Hún segir fr...
Segja tilkomu 764-hópsins kalla á lagabreytingar á Alþingi
📅 06.10.2026 👁️ 4
Segja tilkomu 764-hópsins kalla á lagabreytingar á Alþingi
Lögreglan á Suðurnesjum hvetur til þess að bætt verði inn í frumvarp til nýrra heildarlaga um barnavernd ákvæðum um bann við internetnotkun barna við ...
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem skýrslan afhjúpar er hvað það er auðvelt að fanga athygli fjölmiðla með rusli“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem skýrslan afhjúpar er hvað það er auðvelt að fanga athygli fjölmiðla með rusli“
Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrir...
Fær Nóbelinn fyrir að fanga fis­eindir í suðurskautsís - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Fær Nóbelinn fyrir að fanga fis­eindir í suðurskautsís - Vísir
Halzen er fæddur í Belgíu árið 1944 og er prófessor við Háskólann í Wisconsin í Bandaríkjunum. Hann hefur leitt svokallaða IceCube Neutrino Observator...
Stjörnurnar þefuðu á Kjarval - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Stjörnurnar þefuðu á Kjarval - Vísir
DJ Karítas þeytti skífum og gestalistinn var ekki af verri endanum þar sem fjölmörg kunnugleg andlit mættu til að fagna nýjungunum.  Á meðal gesta vor...
ASOS app users receive notifications apparently sent by hackers
📅 06.10.2026 👁️ 4
ASOS app users receive notifications apparently sent by hackers
Dozens of people appear to have received a strange message from the clothing and beauty store's app.
„Ég bjóst aldrei við að sjá hana“
📅 06.10.2026 👁️ 4
„Ég bjóst aldrei við að sjá hana“
Eftirvænting og spenntar taugar einkenndu gærdaginn hjá Hafdísi.„Fiðrildin eru að fara af stað og nú veit ég ekkert hvernig ég á að vera,“ segir Guðrú...
One-year-old child seriously injured after being hit by car in Fuerteventura
📅 06.10.2026 👁️ 4
One-year-old child seriously injured after being hit by car in Fuerteventura
A one-year-old child has been seriously injured after being hit by a car in Fuerteventura, in an incident which also left a 46-year-old man requiring ...
Small inflatable boats 'set for people smugglers' seized at East Midlands Airport
📅 06.10.2026 👁️ 1
Small inflatable boats 'set for people smugglers' seized at East Midlands Airport
The National Crime Agency says it is the first time the detection of small boat equipment has been made in air freight.
Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsi­legum Firði - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsi­legum Firði - Vísir
Laufey stofnaði Konu árið 2014 og fagnar því tólf ára afmæli í ár. Með flutningunum í nýja húsnæðið hefur búðin fengið meira rými og um leið hefur bæs...
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í eðlis­fræði? - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í eðlis­fræði? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
📅 06.10.2026 👁️ 0
Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum
Selja glæsilegt einbýli með sundlaug í kjallaranum Háahlíð 16 Einbýlishúsið að Háahlíð 16 í Reykjavík er nú til sölu, en um er að ræða stórt og vegleg...
Bandarísk stórstjarna braut reglurnar í Hvammsvík
📅 06.10.2026 👁️ 4
Bandarísk stórstjarna braut reglurnar í Hvammsvík
Rapparinn Ice Spice, sem heitir réttu nafni Isis Naija Gaston, og leikkonan Millie Bobby Brown eru staddar á Íslandi og virðast vera að njóta í botn e...
Veggjalús berst inn á íslensk hótel á þriggja daga fresti
📅 06.10.2026 👁️ 4
Veggjalús berst inn á íslensk hótel á þriggja daga fresti
Veggjalús hefur gert vart við sig í tugum hótelherbergja hér á landi það sem af er ári. Alls hafa 75 tilfelli verið skráð hjá finnska fyrirtækinu Valp...
Kolbrún: „Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara“
📅 06.10.2026 👁️ 4
Kolbrún: „Það vekur auðvitað upp spurningar um hvert fjármunirnir fara“
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingkona Flokks fólksins, ræðir um útrunnin gjafakort í pistli á Vísi og segir þau eigi vera gleðigjöf, en ekki gjöf s...
Fyrsta af­takan með af­töku­sveit frá stríðs­lokum - Vísir
📅 06.10.2026 👁️ 4
Fyrsta af­takan með af­töku­sveit frá stríðs­lokum - Vísir
Peter Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og fyrrverndi sjónvarpsmaður, er sagður hafa lagt fram tillögu um að Nidal Malik Hasan yrði skotinn ti...
Man charged over Gosport migrant protest
📅 06.10.2026 👁️ 4
Man charged over Gosport migrant protest
Protesters held a demonstration after 149 migrants were brought to Gosport on Sunday.
Færri en 20 á Vogi
📅 06.10.2026 👁️ 4
Færri en 20 á Vogi
Plássnýting á sjúkrahúsi SÁÁ að Vogi er enn langt undir markmiðum. Innan við 20 eru þar inniliggjandi en pláss er fyrir 45. Sigurður H. Helgason, fors...
Bókun 35 á dagskrá Alþingis í dag
📅 06.10.2026 👁️ 4
Bókun 35 á dagskrá Alþingis í dag
Lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um að innleiða bókun 35 í íslenska löggjöf verður tekið til umræðu á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir uta...
Mikil öryggisgæsla fyrir fundardag Marco Rubio
📅 06.10.2026 👁️ 4
Mikil öryggisgæsla fyrir fundardag Marco Rubio
„Hver hleytpi hundunum út“ er spurt í laginu góða. Í Höfða kemst hins vegar enginn nema með samþykki hundanna. Búnaður fjölmiðlafólks þurfti samþykki ...
Rubio mættur í Höfða
📅 06.10.2026 👁️ 4
Rubio mættur í Höfða
Í mesta bróðerni deila fjölmiðlar myndum hvor með öðrum. Meðfylgjandi myndir eru frá Eyþóri Árnasyni, ljósmyndara Morgunblaðsins. Eins og góðum gesti ...
Rubio mættur í Safnahúsið - Fundur hafinn
📅 06.10.2026 👁️ 4
Rubio mættur í Safnahúsið - Fundur hafinn
Dagný Hulda Erlendsdóttir er mætti til leiks og við ætlum að tvímenna á þessa fréttavakt í bili. Enda nóg fram undan. Rubio fundar nú með Þorgerði Kat...
Fagnar áherslu Rubios á öryggi og varnir norðurslóða
📅 06.10.2026 👁️ 0
Fagnar áherslu Rubios á öryggi og varnir norðurslóða
Nánari varnarsamvinna, norðurljósin eða fljúgandi furðuhlutur, hernaðarleg uppbygging á Íslandi, umdeilt kort Trumps, fríverslunarsamningar, tvíhliða ...
Stefán hélt í 13 ár að hann mætti ekki gefa blóð: „Kannski eru fleiri þarna úti í sömu stöðu
📅 06.10.2026 👁️ 4
Stefán hélt í 13 ár að hann mætti ekki gefa blóð: „Kannski eru fleiri þarna úti í sömu stöðu
Stefán Pálsson, sagnfræðingur, varaborgarfulltrúi og þjóðfélagsrýnir greinir frá því að í 13 ár hafi hann staðið í þeirri meiningu að hann mætti ekki ...