Lögreglan á Suðurnesjum hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ aðfaranótt föstudagsins 2. október. Nútíminn greinir frá. Grunur er um að fleiri en einn hafi ráðist á brotaþola og barefli hafi verið beitt í árásinni. Brotaþoli er maður á þrítugsaldri og samkvæmt heimildum Nútímans hlaut hann mörg beinbrot og missti tennur í árásinni. Þó kom í ljós að áverkarnir voru ekki jafnalvarlegir og talið var í fyrstu.
Maður sagður hafa margbeinbrotnað í hrottalegri líkamsárás í Reykjanesbæ