Brynjar Karl var ómyrkur í máli og sendi Bjarna harðort skeyti í gær. Hann segir framgöngu Bjarna vera mikil vonbrigði og megi hann þá heldur biðja um Skúla Helgason, forvera Bjarna í íþróttaráðinu. Aþenu sagði hann í andaslitrum eftir að borgin neitaði að endurnýja samning við félagið.
Bjarni segir þetta ekki rétt.
„Vegna umfjöllunar um málefni Aþenu þá er mikilvægt að koma réttum upplýsingum á framfæri. Síðasta föstudag samþykkti Íþrótta- og útilífsráð að borgin tæki yfir rekstur á íþróttamannvirkinu í Austurbergi 3 en húsnæðið var rekið af forsvarsmanni Aþenu ásamt Brynjari Karli,“ segir Bjarni í færslu á Facebook.
Bjarni segir borgina ekki vera að segja upp æfingaaðstöðu Aþenu né skerða tíma/aðgang þeirra að húsnæðinu.
„Félagið heldur áfram að hafa aðgang að sinni aðstöðu og áhersla er lögð á það að Aþena fái nægjanlegan fjölda æfingatíma og aðstöðu til að starfrækja og efla sína starfsemi áfram. Ákvörðunin snýr eingöngu að breyttu fyrirkomulagi á rekstri mannvirkis sem er í eigu borgarinnar með það að markmiði að efla íþróttastarf barna og ungmenna í Efra-Breiðholti í góðri samvinnu við þau félög sem eru með starfsemi þar. Þessi breyting á þannig að styðja við það að fjölga þátttakendum sem geta nýtt húsnæðið,“ segir Bjarni.
Brynjar Karl og Aþena hefur boðað til fundar í Austurbergi í kvöld klukkan tuttugu þar sem til stendur að ræða stöðuna.