Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að taka þurfi niðurstöðum könnunar um skoðanir karlmanna á Íslandi með fyrirvara þar sem úrtakið hafi verið skekkt. Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við sama skóla, segir skýrsluna með könnuninni ekki standa undir ályktunum um að íslenskir karlmenn séu með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum.
Eva og Kolbeinn gagnrýna karlakönnunina - „Það sem skýrslan afhjúpar er hvað það er auðvelt að fanga athygli fjölmiðla með rusli“