Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluumdæmum landsins í þrjú falla í grýttan jarðveg í Fjarðabyggð þar sem bæjarráð leggst alfarið gegn því að yfirstjórn lögreglunnar verði flutt úr landshlutanum.
Samkvæmt tillögu ráðherra verða lögregluembættin á Suðurlandi, í Vestmannaeyjum og á Austurlandi sameinuð í eitt embætti.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir þessu í bókun sem var samþykkt á síðasta fundi ráðsins.
„Bæjarráð hafnar því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og stjórnun löggæslu í landshlutanum verði færð í margra klukkustunda fjarlægð og út fyrir Norðausturkjördæmi.“
Bæjarráð segir að reynsla undanfarinna ára af náttúruvá sýni með ótvíræðum hætti mikilvægi staðbundinnar þekkingar, skýrrar ábyrgðar og öflugrar stjórnunar almannavarna í heimabyggð. Það gefur lítið fyrir yfirlýsingar stjórnvalda um óbreyttan fjölda starfsstöðva og aðstoðarlögreglustjóra í hverju umdæmi og segir það ekki duga til að tryggja staðbundið ákvörðunarvald.
Að auki segir bæjarráð að sameiningin við lögregluna á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum samræmist illa landfræðilegum aðstæðum og þjónustutengslum. Eðlilegra væri að horfa til samstarfs við Norðurland en það eigi þó ekki að gera nema að höfðu raunverulegu samráði við sveitarfélög og viðbragðsaðila.