Það sem af er þessu ári hefur íslenska OMX15-vísitalan, sem mælir gengi 15 stærstu félaganna á markaði, lækkað um rúmlega 11%. Til samanburðar þá hefur sænska úrvalsvísitalan hækkað um rúm 15%, finnska um tæp 14% en sú danska hefur reyndar lítið hreyfst.
Magnús Harðarson, forstjóri íslensku kauphallarinnar, Nasdaq Iceland, segir að ládeyðan á markaðnum sé óvenjuleg. Miðað við þróun undanfarinna ára sé veltan um 40% minni en við hefði mátt búast. Stærsti áhrifaþátturinn sé háir vextir og ákveðin vantrú á að takist að beisla verðbólguna og koma efnahagsstjórninni á réttan kjöl.
Ákveðinnar bjartsýni hafi farið að gæta í ársbyrjun 2025 þegar Seðlabankinn byrjaði að lækka vexti en hún hafi farið þverrandi eftir því sem verr hefur gengið að draga úr verðbólgu - og ekki bætti úr skák þegar stýrivextir fóru aftur að hækka í byrjun þessa árs.
Verðbólguálag 4% til næstu 10 ára
Magnús segir að svartsýnin sjáist líka á að verðbólguálag á skuldabréfamarkaði sé 4% til næstu fjögurra ára - en sé líka 4% til næstu tíu ára - á meðan markmið Seðlabankans er að verðbólgan verði í kringum 2,5%. Fjárfestar hafi sem sagt ekki mikla trú á að það markmið náist, næsta áratuginn eða svo.
Háir vextir valdi því að gerð sé meiri krafa til ávöxtunar sem þrýsti hlutabréfamarkaði niður og fjárfestar leiti í aðra kosti, innlán, skuldabréf og víxla.
Magnús telur þó að viðbrögðin við þessum undirliggjandi aðstæðum í íslensku efnahagslífi hafi verið helst til neikvæð og lýsi töluverðri svartsýni og vantrú. Rekstur íslensku félaganna hafi reyndar gengið misvel og til dæmis hafi komið óhagstæðar fréttir af tveimur stórum félögum sem hafi heldur ekki hjálpað til, en hér vísar Magnús til Alvotech og Oculis. Engu að síður sé ástandið tiltölulega óvenjulegt.
Ef litið sé á veltuna á íslenska markaðnum undanfarin ár, að yfirstandandi ári undanskildu, og tillit tekið til stærðar markaðarins, þá hafi virknin á íslenska markaðnum ekki verið ýkja frábrugðin því sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Árið 2026 skeri sig á hinn bóginn úr.
En hvað þarf þá til að breyta stöðunni?
„Annars vegar held ég nú að þessum kjarasamningum verði lent farsællega, ég held að það sé mjög stórt atriði upp á að markaðurinn fái sýn á það að verðbólga fari hjaðnandi,“ segir Magnús. Hins vegar sé líka mikilvægt að ráðast í ýmsar markaðsumbætur.
Fjárfestingareikningar hafa gefið góða raun
Þegar tæplega helmingshlutur ríkisins í Íslandsbanka var seldur í fyrravor var mikið rætt um að skráningin stuðlaði að aukinni þátttöku almennings á hlutabréfamarkaði, en hlutabréfaeign almennings hér á landi er minni en víða annars staðar – en hvernig gekk það? Jókst þátttakan og á almenningur meira af hlutabréfum en áður?
„Svarið er já og svona hálft nei,“ segir Magnús. Þátttaka almennings hafi verið mjög mikil en margir hafi selt hlut sinn fljótlega. Langtímaáhrifin séu þó jákvæð. Fyrir útboðið hafi einstaklingar átt 1-1,5% af fjárhæð viðskipta en það hlutfall sé nú tvöfalt hærra. Að hans mati þurfi að fara í varanlegar aðgerðir.
Hér vísar Magnús sérstaklega til svonefndra fjárfestingareikninga fyrir almenning sem hafa gefið góða raun, sérstaklega í Svíþjóð, svo góða reyndar að í september í fyrra mælti framkvæmdastjórn Evrópusambandsins með því að öll aðildarríkin innleiddu slíka reikninga. Meðal kosta þessara reikninga er að ekki þarf að greiða skatt af einstaka hlutabréfaviðskiptum innan reikningsins. Þess í stað er árlega greiddur skattur sem byggir á verðmæti eignanna fremur en hagnaði af hverri fjárfestingu.
Magnús segir að einnig sé til bóta ef einstaklingar fái í meiri mæli að ráða hvernig viðbótarlífeyrissparnaði er fjárfest - en það myndi í senn styrkja sjóðaumhverfið og auka fjölbreytni og virkni á markaðnum.
Að mati Magnúsar myndu almennar aðgerðir sem þessar breyta miklu og mögulega laða að erlenda fjárfesta - en þeir hafa verið frekar fáséðir á íslenskum hlutabréfamarkaði. Erlendir fjárfestar koma síður inn á markað sem er óvirkur. Þeir koma inn á markað ef þeir telja að virknin sé sæmileg.
Leggur línuna fyrir fjármögnun fyrirtækja
Hvaða máli skiptir það fyrir íslenskt efnahagslíf að það sé meiri virkni á hlutabréfamarkaði?
Mjög miklu máli, að sögn Magnúsar, sem bendir fyrst á að virkni á hlutabréfamarkaði hafi áhrif á verðmyndun. Þegar veltan og viðskiptin séu lítil sé erfiðara að kaupa og selja og þá geri fjárfestar meiri kröfur til fjárfestingarkosta, sem stuðli að lægra verði. Þar með fá félög minna fyrir hlutabréfin sín og geti þar með ekki fjármagnað sig með jafn hagstæðum hætti. Þetta smiti síðan út frá sér í alla aðra fjármögnun í efnahagslífinu því þegar verið sé að verðleggja óskráð félög sé miðað við verðlagningu á hlutabréfamarkaði sem hafi áhrif á lánamöguleika og lánskjör. Þannig leggi hlutabréfamarkaðurinn, meira og minna, línuna fyrir alla fjármögnun íslenskra fyrirtækja.