Grímuklæddir óeirðaseggir kveiktu eld við inngang Vauquelin framhaldsskólans í París að morgni mánudagsins 5. október á meðan um hundrað nemendur voru inni ásamt starfsfólki. Hópurinn kastaði ruslatunnum að dyrunum, braut rúður og gerði ítrekaðar tilraunir til að brjótast inn í skólann. Þegar það tókst ekki reyndi hópurinn að kveikja í skólanum.
Nemendur, kennarar og blaðamenn þurftu að leita skjóls inni á meðan árásin stóð yfir. Skólinn var loks rýmdur um klukkan 9:45, með óeirðalögreglu á svæðinu, og kennsla felld niður það sem eftir lifði dags.
Svartklæddur hópur kom að skólanum
Carole Zerbib skólastjóri segir um tíu ungmenni hafa komið að skólanum um klukkan 7:50, svartklædd, með hettur og grímur. Starfsfólk hafi fljótt áttað sig á því að ekki væri hægt að ræða við þau.
Ruslatunnum var kastað að innganginum og kveikt í þeim. Þá voru þung högg látin dynja á dyrunum.
„Þetta gerðist mjög hratt, var mjög ofbeldisfullt og virtist vel skipulagt,“ sagði Zerbib í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina LCI.
Samkvæmt skólastjóranum voru þeir sem hófu árásina ekki nemendur skólans. Hún útilokaði þó ekki að nemendur úr skólanum eða öðrum skólum hefðu bæst í hópinn síðar.
Komu aftur og reyndu að brjótast inn
Blaðamenn frönsku útvarpsstöðvarinnar RTL voru á staðnum þegar árásin hófst. Þeir lýsa því að fyrstu tilrauninni til að brjótast inn hafi lokið eftir að skólastjórinn kallaði eftir aðstoð.
Hópurinn hafi hins vegar fljótlega gert aðra tilraun. Um hundrað nemendur hafi þá þurft að halda sig í einu rými ásamt blaðamönnunum. Þriðja innbrotstilraunin hafi fylgt áður en skólinn var rýmdur.
Óeirðir
Meðan fullyrt er að óeirðirnar séu einhverskonar mótmæli vegna ástands í skólum landsins hefur mikið verið um íkveikjur, skemmdarverk og átök við lögreglu.
Zerbib sagðist hafa verið skólastjóri í tuttugu ár og áður upplifað bæði ofbeldi og mótmæli nemenda. Hún hefði hins vegar aldrei upplifað slíkt ofbeldi.
„Ég hef áhyggjur af hvað gerist á næstu dögum, ég leyni því ekki,“ sagði hún við RTL.
🚨 ALERTE INFO – Des émeutiers mettent le feu à l’entrée du lycée Vauquelin à Paris et bloquent les sorties alors que du personnel, des élèves et des journalistes sont confinés à l’intérieur 😳🤯
On assiste à une tentative de meurtre en direct. Toutes les lignes rouges sont franchies.
Ces images sont terrifiantes.
— Bleu Blanc Rouge ! 🇫🇷 (@LBleuBlancRouge) October 5, 2026