Adam heldur utan um starfsemina á vefsíðunni hnifur.is þar sem finna má hinar ýmsu gerðir hnífa, skæra og skyldra vara.
„Þetta er eitthvað meðfætt held ég. Þetta var bara eitthvað svona áhugamál en svo fyrir nokkrum árum bjó ég til síðuna og byrjaði að selja. Svo fyrir þremur árum fjárfesti ég í græjum til að byrja að smíða. En fyrsti hnífurinn var mjög ljótur,“ segir Adam.
Stærsti hlutinn af hnífum sem Adam vasast með eru eldhúshnífar og þar hafa japanskir hnífar sérstöðu. En á sumrin eykst salan á vasahnífum, veiðihnífum og flökunarhnífum þegar fólk er meira úti við. Tálgunarhnífar hafa líka verið vinsælir upp á síðkastið sem og brýni.
„Ég er ekki með neina IKEA hnífa en ég á alveg ódýra hnífa líka. Bara bland. En ég er líka duglegur að skipta, ég á kannski fleiri hnífa en flestir.“