„Hver hleytpi hundunum út“ er spurt í laginu góða. Í Höfða kemst hins vegar enginn nema með samþykki hundanna. Búnaður fjölmiðlafólks þurfti samþykki bæði hunda sérsveitarinnar og einnig hunda öryggisliðs Rubio.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er mætt í Höfða. Tilbúin að taka á móti bandaríska starfsbróður sínum. Það fór vel á með þeim í gær þegar Þorgerður tók á móti Rubio á Keflavíkurflugvelli.
Ragnar Visage, ljósmyndari okkar, er einnig við Höfða. Allir fjölmiðlamenn sem ætla að fylgjast með dagskrá Rubio í dag, þurftu að taka daginn snemma. Það þarf að yfirfara allan búnað sem á að nota, myndavélar og allt tilheyrandi, eins og sjá má á myndum Ragnars hér að neðan.
Hiti var við frostmark í höfuðborginni í morgun og Höfði skartaði sínu fegursta í stillunni, eins og sjá má á myndinni sem Hallgrímur Indriðason tók.
Höfði er fyrsti viðkomustaður Marco Rubio í dag.
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, er staddur hér á landi. Hann fundar með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra í dag. Ég heiti Birta Björnsdóttir og í þessari fréttavakt segjum við allar helstu fréttirnar frá heimsókn dagsins. Við vonum að þið hafið af því gagn en einnig nokkurt gaman.