Bandaríski leikarinn Isaiah Washington, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Grey’s Anatomy, hefur greint frá því að eiginkona hans til 29 ára hafi látist skyndilega í fyrra. Hann hafði fram til þessa haldið andláti hennar frá almenningi.Washington greindi frá þessu á Instagram um helgina þar sem hann staðfesti orðróm sem hafði verið á kreiki. Eiginkona hans, Jenisa Washington, sem einnig gekk undir nafninu Jenisa Garland, hneig skyndilega niður í maí 2025 og lést 9. júní sama ár.
Eiginkona leikarans lést skyndilega – Hvetur fólk til að taka þessi einkenni alvarlega