Peter Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og fyrrverndi sjónvarpsmaður, er sagður hafa lagt fram tillögu um að Nidal Malik Hasan yrði skotinn til bana af aftökusveit. Donald Trump forseti hefði samþykkt tillöguna, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins.
Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn til bana í Fort Hood-herstöðinni í Texas og særði 32 aðra árið 2009. Hann var geðlæknir hjá Bandaríkjaher frá Virginíu.
Við herréttarhöld árið 2013 gerði Hasan takmarkaða tilraun til þess að verja sig. Hann sagðist hafa viljað koma í veg fyrir að hermennirnir færu til Afganistan og dræpu múslima.
Langflestar aftökur í Bandaríkjunum eru á vegum yfirvalda í einstökum ríkjum. Forseti þarf að samþykkja sérstaklega aftökur á vegum Bandaríkjahers. Áfrýjunardómstóll þarf einnig að leggja blessun sína yfir aftökur hersins. Dauðadómar innan hersins eru afar fátíðir og aftökur enn sjaldgæfari.
Síðast tók herinn óbreyttan hermann af lífi fyrir að nauðga telpu árið 1961, að sögn AP-fréttastofunnar.
Aftökur með aftökusveit eru almennt fremur fátíðar í Bandaríkjunum. Yfirvöld í Suður-Karólínu tóku mann af lífi með aftökusveit í fyrra en það var fyrsta aftakan af því tagi í fimmtán ár. Fjögur önnur ríki leyfa af aftökusveitir taki menn af lífi.