Söngkonan Kolfreyja Sól Bogadóttir, betur þekkt sem Alaska, bað nágrannakonu sína afsökunar þegar hún vann níunda sporið í AA-samtökunum. Hún segir frá þessu í hlaðvarpsþættinum Tvöfalt tjón.Kolfreyja segir að eins og venjan er hafi hún beðið fjölskyldu og vini sem hún hafði sært afsökunar þegar hún vann níunda sporið.„En svo var ein kona, nágranni minn... Þetta var bara mjög fín kona, að ég held, þetta var bara rosa fín kona. En í svona tvö ár fokkaði ég á hana í hvert einasta skipti sem ég labbaði fram hjá,“ segir Alaska.
Alaska bað nágrannakonu sína afsökunar eftir tveggja ára leiðindi – „Hún fór að gráta“