Dagný Hulda Erlendsdóttir er mætti til leiks og við ætlum að tvímenna á þessa fréttavakt í bili. Enda nóg fram undan. Rubio fundar nú með Þorgerði Katrínu og Kristrúnu og að þeim fundi loknum halda þau Rubio og Þorgerður blaðamannafund í Safnahúsinu. Hann verður sýndur í beinni útsendingu hér á vefnum okkar.
Fundinn sem nú stendur yfir mega fjölmiðlar þó ekki sitja en alls konar atburðir undafarinna missera setja líklega svip sinn á fundinn.
Ísland og Bandaríkin hafa verið bandamenn í áratugi. Yfirlýsingar Trumps Bandaríkjaforseta um Grænland, nágrannaríki Íslands, hafa þó valdið titringi. Það gerði landakort sem Trump birti á samfélagsmiðlum 7. september einnig. Þar mátti sjá Ísland, Grænland, Kanada og Mið-Ameríku þakin bandaríska fánanum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long sendiherra Bandaríkjanna á teppið eftir að Trump birti kortið. Eftir fundinn sagðist hún hafa sett fram skýr skilaboð af hálfu Íslands um að myndbirtingin hafi verið algjörlega óviðeigandi.
Grænland, Danmörk og Bandaríkin gerðu samning um að styrkja öryggi á norðurslóðum 18. september. Vonast er til að hann verði til þess að meiri ró færist yfir samskipti ríkjanna. Aðalatriði nýja samningsins eru eftirfarandi:
- Bandaríkin fá að koma sér upp tveimur nýjum herstöðvum og stækka þá sem fyrir er á Pituffik.
- Tryggt er að aðilar óvinveittir Bandaríkjunum fái ekki að koma sér upp aðstöðu eða áhrifum á Grænlandi.
- Bandaríkin fái að setja Grænland undir „Gullhvelfinguna“ svokölluðu – loftvarnarkerfi Bandaríkjanna.
Marco Rubio er kominn í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar tók á móti honum forsætisráðherrann Kristrún Frostadóttir.
Leið Rubio liggur frá Höfða og í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar er allt tilbúið fyrir komu gestsins og búið að loka Hverfisgötunni í bili fyrir annarri umferð.
Marco Rubio sagðist í gær spenntur fyrir komandi heimsókn til Íslands. Hann hefur líklega nóg að gera svo heimsókn sem þessi er aldrei tilviljun. Við spurðum Piu Hanson, forstöðumann Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, um tilgang heimsóknarinnar í hádegisfréttum í gær. Pia segir heimsóknina til merkis um aukið mikilvægi norðurslóða. Bandaríkin vilji sýna að þau taki þennan heimshluta alvarlega og þetta sé um leið tækifæri til að sýna fram á sterk tengsl Íslands og Bandaríkjanna.
Mikil öryggisgæsla fylgir komu utanríkisráðherrans. Vopnaðir lögreglumenn standa vaktina við Höfða.
Eftir að Rubio hefur skoðað sig um í Höfða liggur leiðin í Safnahúsið við Hverfisgötu. Þar fundar hann með Þorgerði Katrínu, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra. Kristrún er mætt í Safnahúsið eins og sjá má á meðfylgjandi myndum Ragnars Visage.
Blaðamannafundur utanríkisráðherranna hefst í Safnahúsinu klukkan 10:25 og verður í beinni útsendingu í spilaranum efst í fréttavaktinni.
Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands síðan 2021 þegar Antony Blinken, utanríkisráðherra í ríkisstjórn Joe Biden, kom hingað. Meira um það hér rétt á eftir, því heimsóknir utanríkisráðherra Bandaríkjanna eru fleiri.
David Dean Rusk, utanríkisráðherra Lyndons B. Johnson kom tvisvar hingað til lands á sjöunda áratugnum, 1964 og 1968. Síðari heimsóknin var þátttaka í utanríkisráðherrafundi NATO sem haldinn var hér á landi.
William P. Rogers, utanríkisráðherra í stjórnartíð Richard M. Nixon, kom tvisvar hingað. Í fyrra skiptið, 1972, mótmæltu íslenskir stúdentar komu hans og stóðu vörð um Árnagarð Háskóla Íslands til að meina honum inngöngu til fundar við utanríkisráðherra Íslands, Einar Ágústsson. Seinni heimsókn Rogers var svo ári síðar, 1973, í fylgd með Nixon sem fundaði með George Pompidou, forseta Frakklands, á Kjarvalsstöðum. Reyndar hafði Rogers komið einu sinni áður til landsins, árið 1956, þá einnig í fylgd með Nixon sem þá var varaforseti.
Víkur þá sögunni til utanríkisráðherrans George P. Shultz, sem var viðstaddur leiðtogafundinn í Höfða ásamt forsetanum Ronald Reagan. Það eru sem kunnugt er 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í vikunni. Shultz hafði reyndar komið tvisvar áður til Íslands, árið 1985. Þess má að lokum geta að leikarinn J.K. Simmons leikur Shultz í kvikmyndinni um leiðtogafundinn sem frumsýnd verður hér á landi í vikunni.
James A. Baker III var utanríkisráðherra í stjórn George W.H. Bush. Hann kom hingað til lands í febrúar 1989 til fundar við Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra.
Svo liðu 11 ár og næsti utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem lagði leið sína hingað í vinnuerindum var Madeleine Albright árið 2000. Gestgjafinn þá var utanríkisráðherrann Halldór Ásgrímsson og umræðuefnið varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna.
Eruð þið ekki örugglega enn að lesa upptalningu okkar á bandarísku utanríkisráðherrunum sem hafa komið hingað? Því við erum ekki alveg búin.
Halldór Ásgrímsson var enn utanríkisráðherra þegar næsti kollegi hans mætti í heimsókn. Það var Colin Powell sem kom árið 2002.
Condoleezza Rice, utanríkisráðherra George W. Bush kom til fundar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra 2008 og forsætisráðherrann Geir H. Haarde.
Aftur liðu 11 ár milli heimsókna og Mike Pompeo, utanríkisráðherra á fyrra kjörtímabili Donalds Trump, kom til Íslands 2019 og fundaði með Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra og Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í Hörpu.
Og svo var það sem sagt Antony Blinken sem kom 2021. Þá var Guðlaugur Þór enn utanríkisráðherra, en auk þess fundaði Blinken með Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands. Blinken var til viðtals á RÚV.
Í mesta bróðerni deila fjölmiðlar myndum hvor með öðrum. Meðfylgjandi myndir eru frá Eyþóri Árnasyni, ljósmyndara Morgunblaðsins.
Eins og góðum gesti sæmir skrifaði Rubio í gestabókina á Höfða og skoðaði myndir frá leiðtogafundinum fyrir 40 árum eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.
Það fór vel á með þeim Marco Rubio og Þorgerðir Katrínu Gunnarsdóttur fyrir utan Höfða.
Ljósum prýdd bílalest bandaríska utanríkisráðherrans rennir nú upp að Höfða.
Og andi leiðtogafundarins svífur enn yfir vötnum í Höfða. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er á staðnum og sendi okkur þessa skemmtisögu:
Fréttamennirnir fengu að fara inn í kjallara á Höfða til að hlýja sér aðeins. Þeir erlendu fengu sögustund frá starfsmanni um að á leiðtogafundinn fyrir 40 árum hafi fylgdarlið Gorbatjovs setið í þessum kjallara, reykt og horft á Tomma og Jenna, sem þeir höfðu líklega aldrei séð áður. Sjónvarpið og vídeótækið sem var notað er í skápnum í kjallaranum.
Fundarstaður utanríkisráðherranna tveggja í dag er engin tilviljun. Í vikunni eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða, þegar þeir Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbachev, aðalritari Sovétríkjanna hittust á sögufrægum fundi.
Það er heldur ekki tilviljun að Hollywoodmynd Michael Russell Gunn um leiðtogafundinn verður frumsýnd hér á landi. Í stiklunni í meðfylgjandi frétt má sjá leiknar svipmyndir frá fundinum góða.
Íslandsdeild Amnesty International sendi frá sér yfirlýsingu í gær í aðdraganda heimsóknar Rubio þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að gagnrýna alvarleg mannréttindabrot af hálfu stjónvalda, eins og segir í tilkynningunni.
Í yfirlýsingu Amnesty segir meðal annars;
Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að nýta heimsókn Marco Rubio til að:
- taka niðurstöður Amnesty International um alvarleg mannréttindabrot í aðgerðum bandarískra innflytjendayfirvalda upp við utanríkisráðherrann;
- koma á framfæri kröfu Amnesty International um að ICE verði lagt niður þegar í stað og komið verði á innflytjendaeftirliti sem samræmist alþjóðlegum mannréttindalögum og -viðmiðum;
- lýsa yfir andstöðu við dauðarefsinguna og hvetja bandarísk stjórnvöld til að stöðva aftökur og vinna að fullu afnámi hennar;
- gagnrýna brot Bandaríkjanna gegn alþjóðlegum mannúðarlögum í tengslum við hernaðaraðgerðir í Íran og leggja áherslu á skyldu Bandaríkjanna til að vernda óbreytta borgara;
- kalla eftir því að þeir sem bera ábyrgð á brotum gegn alþjóðalögum verði dregnir til ábyrgðar.
Marco Antonio Rubio er fæddur 28.maí 1971. Hann er sonur kúbverskra innflytjenda og fyrsti spænskumælandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann er mikill stuðningsmaður stjórnvalda í Ísrael og styður hömlur á innflutning frá Kína.
Rubio er fæddur og uppalinn í Miami á Flórída. Hann var þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Flórída árið 2000 og fékk sæti í öldungadeildinni 2010.
Hann freistaði þess að verða forseti Bandaríkjanna þegar hann bauð sig fram í forvali Repúblikanaflokssins 2015. Þar var hann afar gagnrýninn á mótframbjóðanda sinn, Donald Trump og þeir tókust oft harkalega á í kappræðum og annari umræðu. Trump hafði betur og varð forsetaframbjóðandi Repúblikana og svo forseti sem kunnugt er. Rubio fylkti sér svo að baki honum í aðdraganda kosninga og ekki virðist orðaskakið hafa dregið mikinn dilk á eftir sér því Trump valdi Rubio sem utanríkisráðherrann sinn á seinna kjörtímabili sínu.
„Hver hleypti hundunum út“ er spurt í laginu góða. Í Höfða kemst hins vegar enginn nema með samþykki hundanna. Búnaður fjölmiðlafólks þurfti samþykki bæði hunda sérsveitarinnar og einnig hunda öryggisliðs Rubio.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er mætt í Höfða. Tilbúin að taka á móti bandaríska starfsbróður sínum. Það fór vel á með þeim í gær þegar Þorgerður tók á móti Rubio á Keflavíkurflugvelli.
Ragnar Visage, ljósmyndari okkar, er einnig við Höfða. Allir fjölmiðlamenn sem ætla að fylgjast með dagskrá Rubio í dag, þurftu að taka daginn snemma. Það þarf að yfirfara allan búnað sem á að nota, myndavélar og allt tilheyrandi, eins og sjá má á myndum Ragnars hér að neðan.
Hiti var við frostmark í höfuðborginni í morgun og Höfði skartaði sínu fegursta í stillunni, eins og sjá má á myndinni sem Hallgrímur Indriðason tók.
Höfði er fyrsti viðkomustaður Marco Rubio í dag.
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, er staddur hér á landi. Hann fundar með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra í dag. Ég heiti Birta Björnsdóttir og í þessari fréttavakt segjum við allar helstu fréttirnar frá heimsókn dagsins. Við vonum að þið hafið af því gagn en einnig nokkurt gaman.