Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir

Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir

Sprenging í sölu salt­vatns­potta á Ís­landi - Vísir

Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is, segir þróunina hafa verið hraða og að ánægðir eigendur saltvatnspotta séu líklega besta auglýsingin. „Viðskiptavinir sem eru með saltvatnspotta mæla svo mikið með þeim. Það smitast síðan yfir til annarra. Þegar fólk kemur í búðina til okkar vill það þess vegna oft bara skoða saltvatnspotta,“ segir Ari.

Ari Steinn Kristjánsson, framkvæmdastjóri Heitirpottar.is á góðri stundum með dóttur inni, að sjálfsögðu í heitum potti.

Pabbi þurfti sjö ár til að sannfærast

En hvað er saltvatnspottur eiginlega? Ari segir mikilvægt að byrja á því að leiðrétta algengan misskilning. Saltvatnspottur er ekki pottur fullur af sjó heldur rafmagnspottur með sérstökum saltvatns- og hreinsibúnaði.

Potturinn er fylltur með venjulegu köldu kranavatni og sérstakri saltblöndu er bætt út í. Hreinsikerfið framleiðir síðan klór úr saltinu eftir þörfum og viðheldur vatnsgæðunum. Saltmagnið er lítið og því finnur fólk hvorki saltbragð í munni né sviða í augum eins og margir ímynda sér þegar þeir heyra orðið saltvatnspottur.

„Kerfið í flottustu saltvatnspottunum í dag sér í raun um vatnsgæðin fyrir mann. Maður fyllir einfaldlega pottinn af vatni og hann mallar og framleiðir klór úr saltinu eftir þörfum. Þess vegna er mjög lítið viðhald.“

Ari segir að samkvæmt leiðbeiningum þurfi aðeins að skipta um vatn um það bil einu sinni á ári, sé rétt staðið að umhirðu þess. „Það hljómar kannski ógeðslega, en vatnið er hreinna og betra fyrir húðina en glænýtt hitaveituvatn. Það er það ótrúlegasta við þessa potta.“

Reyndar hljómaði hugmyndin svo vel að faðir Ara, sem stofnaði fyrirtækið á sínum tíma, var lengi vel ekki tilbúinn að kaupa hana. „Það tók pabba sjö ár að ákveða að panta þessa potta inn. Hann trúði þessu ekki. Honum fannst þetta vera „too good to be true“, einfaldlega of gott til að vera satt.“

Minna viðhald og mýkri húð

Ari segir þægindin við saltvatnskerfið eiga stóran þátt í vinsældunum. Auk þess finni margir notendur mun á húðinni eftir að hafa setið í pottinum. „Saltið hjálpar til við að næra húðina og bindur vatnið við húðina. Þannig færðu bæði hreinna vatn og pott sem er þægilegra að sjá um, en um leið verður húðin mýkri eftir notkun.“

Saltvatnspottarnir frá Arctic Spas eru með sjálfvirkt SPABOY-hreinsikerfi sem fylgist með vatnsgæðunum og lætur eigandann vita ef grípa þarf inn í. Einnig er hægt að fylgjast með pottinum í gegnum hugbúnað og meðal annars sjá upplýsingar um orkunotkun.

Þótt heitir saltvatnspottar séu langalgengastir segir Ari tæknina alls ekki bundna við heita potta. „Það er hægt að fá þá kalda líka. Þetta er því að taka yfir markaðinn á báðum sviðum.“

Frá tveimur upp í tuttugu manns

Pottarnir eru sömuleiðis fáanlegir í fjölbreyttum stærðum. Ari segir þá fást allt frá litlum tveggja manna pottum upp í stóra potta fyrir allt að tuttugu manns.

„Það er líka hægt að fá mismunandi útfærslur og liti, velja hvort maður vill legusæti, nudd eða hljóðkerfi. Það eru alls konar viðbætur sem hægt er að bæta við þannig að maður getur í raun hannað pott sem hentar manni fullkomlega.“

Pottarnir fara bæði á heimili og í sumarbústaði og salan virðist ekki lengur bundin við ákveðinn árstíma. „Saltvatnspottarnir seljast jafnt og þétt allt árið. Miðað við tölurnar síðustu tvö til þrjú árin finnum við bara fyrir aukningu. Við erum alltaf að toppa okkur. Í raun erum við að toppa fyrri tölur í hverjum mánuði fyrir sig.“

Það sem vekur sérstaka athygli er að sögn Ara hversu hratt saltvatnspottarnir sækja í sig veðrið á kostnað annarra tegunda. „Það er ekki bara þannig að saltvatnspottar séu almennt að verða vinsælli heldur er fólk líka í auknum mæli að velja saltvatnspott fram yfir hitaveitupott eða hefðbundinn rafmagnspott. Hlutfall saltvatnspotta er að aukast mjög hratt.“

Íslenski potturinn fæddist í Kanada

Vaxandi eftirspurn hefur orðið til þess að Heitirpottar.is ætlar að auka úrvalið enn frekar. Þar ber hæst nýr pottur sem Ari og Kristján faðir hans hafa hannað í samstarfi við kanadíska framleiðandann Arctic Spas sérstaklega fyrir íslenskan markað. „Við erum búnir að fá grænt ljós á pottinn frá framleiðandanum og hann er nú þegar kominn í framleiðslu.“

Ari segir óvenjulegt að söluaðili komi með þessum hætti beint að hönnun nýs potts fyrir sinn heimamarkað.

Og hvað einkennir íslenska pottinn? Svarið liggur að einhverju leyti í sundlaugarmenningu þjóðarinnar. „Við finnum fyrir því að margir á Íslandi eru ekkert sérstaklega mikið að hugsa um nudd. Fólk vill einfaldan pott. Þessi pottur er því með einföld sæti og er opinn í laginu þannig að hægt er að koma mörgum fyrir í honum.“

Hönnunin sækir þannig innblástur í heitu pottana sem Íslendingar þekkja úr sundlaugunum. „Þegar þú ferð í heitan pott í sundi er hann yfirleitt frekar létt mótaður og hægt að koma mörgum fyrir. Áherslan í pottinum sem við hönnuðum var því á léttmótað form, gott fótapláss og ekki mikla áherslu á nudd.“

Þess í stað var lögð áhersla á þrjú atriði sem skipta miklu máli við íslenskar aðstæður: góða hitaeinangrun, lágan rekstrarkostnað og öflugt hreinsikerfi.

Drottningin mætir næsta vor

Nýi potturinn hefur fengið nafnið Queen og verður að sögn Ara aðalfjölskyldupottur fyrirtækisins næsta vor. Hann er í hefðbundinni sex manna stærð og rúmar um fimm til sjö manns.

Framleiðsla á fyrstu 50 pottunum er þegar hafin og eiga að berast í vetur. Ari býst við að þeir geti selst upp fyrir árslok og önnur sending kemur síðan næsta vor. „Við mælum því með því að fólk bregðist skjótt við ef það vill tryggja sér eintak. Pottarnir eru framleiddir í ákveðnum hollum í verksmiðjunni og þess vegna er sniðugt að tryggja sér pott fyrirfram.“

Arctic Spas framleiðir pottana í Kanada og segir Ari þá sérstaklega vel henta íslenskum aðstæðum. Pottarnir séu hannaðir með mikið frost, hvassviðri og erfið veðurskilyrði í huga, enda þurfi þeir að standast kanadískan vetur.

Pottþjóðin vill líka stærri potta

Íslendingar þurfa líklega litla hvatningu til að setjast ofan í heitt vatn en Ari segir Íslendinga vera öflugustu pottþjóð heims miðað við höfðatölu. Þar spili saman fjöldi potta við heimili og sumarbústaði, fjöldi potta í líkamsræktarstöðvum og baðlónum og hin rótgróna íslenska sundlaugarmenning. „Við erum bæði með fleiri potta og fleiri sundlaugar. Þetta er bara stór hluti af menningunni okkar.“

Og pottamenningin heldur áfram að þróast. Samhliða aukinni sölu saltvatnspotta hefur Heitirpottar.is fundið fyrir ört vaxandi áhuga á svokölluðum sundlaugarpottum. Þeir eru nokkurs konar millivegur milli hefðbundins heits potts og lítillar sundlaugar og geta rúmað allt að tuttugu manns.

Eftirspurnin er slík að fyrirtækið hyggst tífalda pöntun sína á þessum pottum fyrir næsta vor. „Þeir eru hugsaðir fyrir fjölskylduna. Það er hægt að sitja í þeim en þetta eru líka frábærir leikpottar fyrir krakkana.“

Hitastigið má stilla eftir tilefni, allt frá sundlaugarhita upp í hefðbundinn hita í heitum potti. Þannig getur sami potturinn verið busllaug fyrir börnin, sundpottur eða staður fyrir fullorðna til að slaka á.

„Það er hægt að synda í honum en líka hægt að slappa af. Svo er hægt að stilla hann á sundlaugarhitastig, hitastig eins og í heitum potti eða einhvern milliveg þar á milli.“

Ef marka má söluþróun síðustu ára virðist því fátt benda til þess að pottáhugi Íslendinga sé að kólna. Þvert á móti eru pottarnir að verða fjölbreyttari, tæknivæddari og stærri og saltvatnið virðist vera að sækja hratt í sig veðrið.

#saltvatnspotta #sprenging #sölu #vísir #íslandi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262944305d/sprenging-i-solu-salt-vatns-potta-a-is-landi

📰 Aðrar fréttir

Sprengingar heyrast í Kaliningrad héraði
📅 21.11.2026 👁️ 2
Sprengingar heyrast í Kaliningrad héraði
Sprengingar hafa heyrst og tilkynnt hefur verið um flug dróna nærri rússneskri flotastöð í Kaliningrad-héraði í kvöld. Úkraínski miðillinn Kyiv Indepe...
„Við undir­búum okkur fyrir svo margt í lífinu“ - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 1
„Við undir­búum okkur fyrir svo margt í lífinu“ - Vísir
Hún segir meginþema nýrrar vitundarvakningar félags- og húsnæðisráðuneytisins annars vegar að fá fólk sem er að fara á eftirlaun á næstu árum til þess...
Lifði sem transkona í sex ár og segir kristna trú hafa breytt lífi sínu
📅 21.11.2026 👁️ 1
Lifði sem transkona í sex ár og segir kristna trú hafa breytt lífi sínu
Lifði sem transkona í sex ár og segir kristna trú hafa breytt lífi sínu Fréttin21. nóvember 2026Erlent, Transmál, TrúmálLeave a Comment Diego Arellan ...
Sprengingar og loftvarnalúðrar í mið­stöð Eystrasaltsflotans - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 1
Sprengingar og loftvarnalúðrar í mið­stöð Eystrasaltsflotans - Vísir
Kalíníngrad er rússnesk hólmlenda sem liggur að Póllandi og Litháen. Kyiv Independent fjallar um málið en segist ekki hafa getað sannreynt að sprengin...
Yfir 130 höfundar í Hörpu um helgina: Hverjar eru jólabækurnar í ár?
📅 21.11.2026 👁️ 1
Yfir 130 höfundar í Hörpu um helgina: Hverjar eru jólabækurnar í ár?
Yfir 130 rithöfundar og bókaútgáfur kynna verk sín á Bókahátíð í Hörpu um helgina.Flestir höfundanna eru íslenskir en sex gestahöfundar heimsækja hátí...
Jólaljósin tendruð á Ráðhústorgi
📅 21.11.2026 👁️ 4
Jólaljósin tendruð á Ráðhústorgi
Jólasveinarnir voru óvenju snemma á ferðinni á Akureyri í dag. Þeir vildu nefnilega ekki missa af því þegar ljósin voru tendruð.Fjölmargir, ungir sem ...
Vilja endurvekja rústabjörgunarsveit Íslands
📅 21.11.2026 👁️ 4
Vilja endurvekja rústabjörgunarsveit Íslands
Ýmis tæki og tól voru notuð til að æfa rústabjörgun hjá björgunarsveitum landsins í dag. Björgunarfólk skreið í gegnum myrk göng og leitaði fólks með ...
Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt myglueitur hafi mælst yfir mörkum
📅 21.11.2026 👁️ 2
Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt myglueitur hafi mælst yfir mörkum
Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur þótt það hafi neytt hveitis sem innihélt mögulega myglueitur, að mati deildarstjóra matvæladeildar Matvælastofnunar, M...
Spitting Image co-creator Peter Fluck dies aged 85
📅 21.11.2026 👁️ 5
Spitting Image co-creator Peter Fluck dies aged 85
The 85-year-old he died in the early hours of Saturday at home in Cornwall, following a recent illness.
Jair Bolosonaro á gjörgæslu
📅 21.11.2026 👁️ 4
Jair Bolosonaro á gjörgæslu
Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu, liggur á gjörgæslu vegna hindrunar í meltingarvegi. Bolsonaro er 71 árs gamall.Í tilkynningu frá DF Star...
Fógetaumdæmið Barnham kaus að kljúfa sig frá Bret­landi - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Fógetaumdæmið Barnham kaus að kljúfa sig frá Bret­landi - Vísir
Alls greiddu 257 atkvæði með því að yfirgefa Bretland, eða 94% þeirra sem tóku þátt, en 16 greiddu atkvæði á móti samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvar...
De Niro var sendur heim úr veislu Jennifer Lawrence – Segir nú frá því sem gerðist
📅 21.11.2026 👁️ 4
De Niro var sendur heim úr veislu Jennifer Lawrence – Segir nú frá því sem gerðist
Stórleikarinn Robert De Niro hefur staðfest að Jennifer Lawrence hafi beðið hann um að fara heim úr veislu sem haldin var í aðdraganda brúðkaups henna...
Vélfag leitar til umboðsmanns Alþingis – gagnrýnir málsmeðferð utanríkisráðuneytisins
📅 21.11.2026 👁️ 2
Vélfag leitar til umboðsmanns Alþingis – gagnrýnir málsmeðferð utanríkisráðuneytisins
Vélfag leitar til umboðsmanns Alþingis – gagnrýnir málsmeðferð utanríkisráðuneytisins Fréttin21. nóvember 2026InnlendarLeave a Comment Samsett mynd: S...
Vísbendingar um að tölvuárás hafi beinst gegn vefsíðum sem styðja Palestínu
📅 21.11.2026 👁️ 5
Vísbendingar um að tölvuárás hafi beinst gegn vefsíðum sem styðja Palestínu
Rannsókn á tölvuárás á íslenska nethýsingarfyrirtækið 1984 bendir til þess að upphaflegt markmið hennar hafi verið að taka niður vefsíður sem styðja m...
Kostnaður getur útilokað börn frá íþróttastarfi
📅 21.11.2026 👁️ 4
Kostnaður getur útilokað börn frá íþróttastarfi
Fjölskyldur geta staðið frammi fyrir ólíkum fjárhagslegum þröskuldi í íþróttaiðkun barna.Kostnaðurinn getur numið hundruðum þúsunda á ári fyrir eitt b...
Gagnagrunnur FBI varð fyrir netárás
📅 21.11.2026 👁️ 5
Gagnagrunnur FBI varð fyrir netárás
Gagnagrunnur FBI varð fyrir netárás Fréttin21. nóvember 2026Erlent, ÖryggismálLeave a Comment FBI og landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna hafa orðið fyr...
Margrét Friðriksdóttir opnar söfnun til að greiða sakarkostnað
📅 21.11.2026 👁️ 6
Margrét Friðriksdóttir opnar söfnun til að greiða sakarkostnað
Margrét Friðriksdóttir, stofnandi og ritstjóri Fréttarinnar, hefur opnað söfnun á GoFundMe og biður um stuðning til að greiða sakarkostnað eftir að hú...
Katrín opnar sig um veikindin í nýrri heimildarmynd
📅 21.11.2026 👁️ 4
Katrín opnar sig um veikindin í nýrri heimildarmynd
Katrín prinsessa af Wales segir krabbamein hafa breytt sér líkamlega en að greiningin hafi líka haft dýpri áhrif. Ný heimildarmynd þar sem prinsessan ...
Sláturdilkum fjölgaði í fyrsta sinn í frá 2017
📅 21.11.2026 👁️ 3
Sláturdilkum fjölgaði í fyrsta sinn í frá 2017
Sauðfjárslátrun er lokið í öllum stærri sláturhúsum landsins og sláturdilkum fjölgaði milli ára í fyrsta sinn frá 2017.„Hún hefur bara sjaldan eða ald...
KALEO, Bubbi og Eivör meðal stórstjarna á Bergmáli á Vestfjörðum 2027
📅 21.11.2026 👁️ 3
KALEO, Bubbi og Eivör meðal stórstjarna á Bergmáli á Vestfjörðum 2027
KALEO, Bubbi og Eivör meðal stórstjarna á Bergmáli á Vestfjörðum 2027 Fréttin21. nóvember 2026Innlent, Menning, TónlistLeave a Comment Tónlistarhátíði...
Mega nota gervigreindarmyndavélar til að fylgjast með öku­mönnum - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Mega nota gervigreindarmyndavélar til að fylgjast með öku­mönnum - Vísir
Umrædd kerfi eru úr ranni fyrirtækis sem heitir Idrive AI. Myndavél í framrúðunni snýr bæði út á veginn og að ökumanninum. Hún fylgist með því hvort r...
Afmælisveisla endaði með ólýsanlegum harmleik – Þrjú börn misstu foreldra sína
📅 21.11.2026 👁️ 3
Afmælisveisla endaði með ólýsanlegum harmleik – Þrjú börn misstu foreldra sína
Börn bandarískra hjóna, sem fundust bæði látin eftir að hafa gist hjá vinum í kjölfar afmælisveislu í febrúar síðastliðnum, hafa höfðað skaðabótamál v...
Krónan opnaði á Höfn í morgun
📅 21.11.2026 👁️ 4
Krónan opnaði á Höfn í morgun
Krónan opnaði nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði í morgun við góðar undirtektir heimamanna. Margir Hornfirðingar voru mættir snemma dags til að k...
Nýr veruleiki blasir við í netöryggi
📅 21.11.2026 👁️ 4
Nýr veruleiki blasir við í netöryggi
Nýr veruleiki blasir við í netöryggi með tilkomu gervigreindar, segir Magni Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, netöryggissveitar Íslands. Umfangsmikil...
Áhöfn flutt af rússnesku flutningaskipi sem varð fyrir drónaárás
📅 21.11.2026 👁️ 4
Áhöfn flutt af rússnesku flutningaskipi sem varð fyrir drónaárás
Áhöfn rússnesks flutningaskips sem varð fyrir drónaárás á Finnlandsflóa í morgun er að yfirgefa skipið og fara í björgunarbáta. Eldur kviknaði um borð...
Þeir sem lesi lítið geti kynnst lystisemdum lesturs - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Þeir sem lesi lítið geti kynnst lystisemdum lesturs - Vísir
Bókahátíðin í Hörpu fór fram í dag og fer aftur fram milli klukkan ellefu og fimm á morgun. Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bók...
Finnar frysta þróunarfé til Sómalíu
📅 21.11.2026 👁️ 4
Finnar frysta þróunarfé til Sómalíu
Finnland hefur fryst þróunarfé til Sómalíu vegna þess sem finnsk stjórnvöld segja ófullnægjandi samstarf um að taka við sómalískum ríkisborgurum sem v...
Ukraine: Wes Streeting calls Putin a 'cold-blooded killer' as he meets Zelensky in Kyiv
📅 21.11.2026 👁️ 3
Ukraine: Wes Streeting calls Putin a 'cold-blooded killer' as he meets Zelensky in Kyiv
The BBC's Sarah Rainsford reports from Kyiv after Ukrainian President Zelensky met the UK defence secretary.
Elskan snýr aftur með pompi og prakt - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Elskan snýr aftur með pompi og prakt - Vísir
„Elskan hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá gestum okkar og því fannst okkur tilvalið að færa hann aftur á seðilinn. Hann er nú að finna undir Fan...
England 37-12 New Zealand: Hosts run up record win over All Blacks
📅 21.11.2026 👁️ 5
England 37-12 New Zealand: Hosts run up record win over All Blacks
England's revival roars up a gear as they beat New Zealand by a record margin after former captain Lewis Moody leads the hosts' response to the haka.
Kristrún sleggja: núll eða kosningar
📅 21.11.2026 👁️ 5
Kristrún sleggja: núll eða kosningar
Kristrún sleggja: núll eða kosningar Fréttin21. nóvember 2026Innlent, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Á þriðja mánuði ríkisstjórna...
Hæðir húsanna í Silfursmára enn ó­á­kveðnar - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Hæðir húsanna í Silfursmára enn ó­á­kveðnar - Vísir
Klasi stendur að áformum um íbúðar- og atvinnuhúsnæði á bílastæðalóð sunnan við Smáralind. Heimilt er að byggja allt að fimm hæða há hús samkvæmt gild...
Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin
📅 21.11.2026 👁️ 3
Pétur varar við dýrkeyptum mistökum í Reykjavík: Eignir borgarinnar eru ekki eignir þeirra sem fara með völdin
Pétur H. Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, varar við því að borgin selji frá sér mikilvæga innviði og segir að ekki eigi að líta á e...
Samninga­við­ræður á COP31 í pattstöðu - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Samninga­við­ræður á COP31 í pattstöðu - Vísir
Loftslagsráðstefnan fer fram í Tyrklandi og hófst í síðustu viku. Tíu manna opinber sendinefnd fór fyrir hönd íslenskra stjórnvalda, þar á meðal Jóhan...
Opnar sig um krabba­meinið - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Opnar sig um krabba­meinið - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá. Myndin er sögð afar persónuleg en hún nefnist Heal og verður sýnd á BBC þann 29. nóvember.  „Það breytir manni líkam...
Fengið á­bendingar um myndir af fólki að keyra - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Fengið á­bendingar um myndir af fólki að keyra - Vísir
Fyrsta færsla reikningsins birtist í lok ágúst og eru þær orðnar 75 talsins. Sú nýlegasta var birt í dag. Allar færslurnar eru nærmyndir af ökumönnum ...
Drónaárás á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa
📅 21.11.2026 👁️ 4
Drónaárás á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa
Drónaárás var gerð á rússneskt flutningaskip á Finnlandsflóa suðvestur af Helsinki í morgun. Finnski herinn greindi frá þessu í tilkynningu og sagði á...
Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar
📅 21.11.2026 👁️ 4
Draga úr þjónustu á ákveðnum leiðum til að geta bætt í annars staðar
Framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins segir breytingar á leiðakerfi Strætó minniháttar í stóra samhenginu. Ferðirnar sem felldar v...
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn
📅 21.11.2026 👁️ 4
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn
„Gangið til liðs við réttu hlið sögunnar,“ segir Pútín við Úkraínumenn Fréttin21. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pútín, f...
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember
📅 21.11.2026 👁️ 3
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember
Strætó sker niður kvöldferðir á helmingi leiða – umfangsmiklar breytingar taka gildi 1. desember Fréttin21. nóvember 2026Innlent, SamgöngurLeave a Com...
Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“
📅 21.11.2026 👁️ 3
Spurning dagsins á vegum VAL: „Það þarf enga prófgráðu til að spyrja góðrar spurningar“
Í „Spurningu dagsins“ fær forvitni fólks á öllum aldri að ráða ferðinni. Rannsóknarhópurinn að baki VAL vill með stuttum myndböndum gefa almenningi fo...
Af­sakið hlé: Tækni­legir örðug­leikar og heims­endir - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Af­sakið hlé: Tækni­legir örðug­leikar og heims­endir - Vísir
Í vikunni var spáð svokölluðum stafrænum heimsenda en þegar dagurinn rann loks upp á þriðjudaginn gerðist auðvitað ekkert. Áhyggjur fólks eru þó ekki ...
Lögreglan lýsir eftir Nikulási
📅 21.11.2026 👁️ 5
Lögreglan lýsir eftir Nikulási
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni sem er 72 ára. Nikulás er rúmir 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Í tilkynningu frá ...
Nafn mannsins sem lést í Breiðholti
📅 21.11.2026 👁️ 4
Nafn mannsins sem lést í Breiðholti
Maðurinn sem lést í átökum við gatnamót Austurbergs og Hraunbergs í Breiðholti aðfaranótt 1. nóvember hét Alexander Prince.Vísir greinir frá þessu en ...
„Hvernig fæ ég kyn­hvötina aftur?“ - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
„Hvernig fæ ég kyn­hvötina aftur?“ - Vísir
Sæl og takk fyrir spurninguna. Það er svolítið merkilegt hvað við getum saknað þess að langa í eitthvað sem okkur langar ekki í. Virkar eins og ákveði...
Á­herslan hafi verið á síður sem tengjast Palestínu - Vísir
📅 21.11.2026 👁️ 4
Á­herslan hafi verið á síður sem tengjast Palestínu - Vísir
Vefhýsingarvefurinn 1984 ehf. varð fyrir umfangsmikilli netárás með þeim afleiðingum að öll þjónusta fyrirtækisins var stöðvuð tímabundið. Mörður Ásla...
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri
📅 21.11.2026 👁️ 2
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri
Danmörk vill stöðva ferðamannavegabréfsáritanir til Rússa eftir meint morðsamsæri Fréttin21. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Dönsk stjórnvöld hafa ...
Four taken to hospital after crash on the TF-1 in south Tenerife
📅 21.11.2026 👁️ 3
Four taken to hospital after crash on the TF-1 in south Tenerife
Four people were taken to hospital after a multi-vehicle crash on the TF-1 motorway near Las Chafiras, in San Miguel de Abona, in the early hours of t...
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa
📅 21.11.2026 👁️ 3
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa
Árásir á orkumannvirki og flutningaskip – stríðið í Úkraínu teygir sig inn á Finnlandsflóa Fréttin21. nóvember 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comme...
Lögreglan lýsir eftir Nikulási Snorrasyni
📅 21.11.2026 👁️ 4
Lögreglan lýsir eftir Nikulási Snorrasyni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Nikulási Snorrasyni. Hann er 72 ára. Nikulás er rúmlega 170 sentímetrar á hæð og þéttvaxinn. Ekkert hefur s...