Rubio lenti á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi og tóku Þorgerður Katrín og Billy Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, á móti honum þar.
Lengri dagskrá er í dag. Rubio mun heimsækja Höfða og fá þar kynningu á húsinu sögufræga en heldur síðan í Safnahúsið. Þar mun hann funda með Þorgerði og Kristrúnu en til stendur að ræða sameiginleg forgangsmál Íslands og Bandaríkjanna, eins og öryggi á norðurslóðum, efnahagstengsl og varnarsamstarf.
Rubio mætir síðan á blaðamannafund þar sem íslenskir og erlendir fjölmiðlar fá að spyrja hann nokkurra spurninga. Smári Jökull Jónsson, fréttamaður Vísis og Bylgjunnar, mun fylgja Rubio eftir í beinni útsendingu.
Spilarinn birtist hér rétt fyrir klukkan 8:30.
Sömuleiðis er hægt að lesa allt um heimsókn Rubio í vaktinni hér fyrir neðan.
Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.