Lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um að innleiða bókun 35 í íslenska löggjöf verður tekið til umræðu á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir frumvarpinu. Þetta er eina málið á dagskrá Alþingis í dag fyrir utan störf þingsins í upphafi þingfundar.
Þetta er í þriðja sinn sem frumvarp um bókun 35 er lagt fram á Alþingi. Á þarsíðasta þingi var búið að mæla fyrir því og ljúka nefndarstörfum milli fyrstu og annarrar umræðu. Frumvarpið varð þó ekki að lögum að því sinni þar sem það var ekki hluti af samkomulagi ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu um þinglok.
Eftirlitsstofnun EFTA höfðaði í síðustu viku mál gegn íslenskum stjórnvöldum vegna þess að bókunin hefði ekki verið innleidd með réttum hætti. Þorgerður Katrín sagði þá að meiri bragur væri á því að ljúka málinu með lagasetningu heldur en fyrir dómstólum í Lúxemborg.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að það væri á ábyrgð ríkisstjórnarinnar að bregðast við málaferlunum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði að taka ætti frumvarpið af dagskrá Alþingis og taka til varna fyrir dómi. Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, sagði að stjórnarskrá leyfði ekki að bókun 35 yrði sett í lög.