Í mesta bróðerni deila fjölmiðlar myndum hvor með öðrum. Meðfylgjandi myndir eru frá Eyþóri Árnasyni, ljósmyndara Morgunblaðsins.
Eins og góðum gesti sæmir skrifaði Rubio í gestabókina á Höfða og skoðaði myndir frá leiðtogafundinum fyrir 40 árum eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.
Það fór vel á með þeim Marco Rubio og Þorgerðir Katrínu Gunnarsdóttur fyrir utan Höfða.
Ljósum prýdd bílalest bandaríska utanríkisráðherrans rennir nú upp að Höfða.
Og andi leiðtogafundarins svífur enn yfir vötnum í Höfða. Hallgrímur Indriðason fréttamaður er á staðnum og sendi okkur þessa skemmtisögu:
Fréttamennirnir fengu að fara inn í kjallara á Höfða til að hlýja sér aðeins. Þeir erlendu fengu sögustund frá starfsmanni um að á leiðtogafundinn fyrir 40 árum hafi fylgdarlið Gorbatjovs setið í þessum kjallara, reykt og horft á Tomma og Jenna, sem þeir höfðu líklega aldrei séð áður. Sjónvarpið og vídeótækið sem var notað er í skápnum í kjallaranum.
Fundarstaður utanríkisráðherranna tveggja í dag er engin tilviljun. Í vikunni eru 40 ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða, þegar þeir Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbachev, aðalritari Sovétríkjanna hittust á sögufrægum fundi.
Það er heldur ekki tilviljun að Hollywoodmynd Michael Russell Gunn um leiðtogafundinn verður frumsýnd hér á landi. Í stiklunni í meðfylgjandi frétt má sjá leiknar svipmyndir frá fundinum góða.
Íslandsdeild Amnesty International sendi frá sér yfirlýsingu í gær í aðdraganda heimsóknar Rubio þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að gagnrýna alvarleg mannréttindabrot af hálfu stjónvalda, eins og segir í tilkynningunni.
Í yfirlýsingu Amnesty segir meðal annars;
Íslandsdeild Amnesty International skorar á íslensk stjórnvöld að nýta heimsókn Marco Rubio til að:
- taka niðurstöður Amnesty International um alvarleg mannréttindabrot í aðgerðum bandarískra innflytjendayfirvalda upp við utanríkisráðherrann;
- koma á framfæri kröfu Amnesty International um að ICE verði lagt niður þegar í stað og komið verði á innflytjendaeftirliti sem samræmist alþjóðlegum mannréttindalögum og -viðmiðum;
- lýsa yfir andstöðu við dauðarefsinguna og hvetja bandarísk stjórnvöld til að stöðva aftökur og vinna að fullu afnámi hennar;
- gagnrýna brot Bandaríkjanna gegn alþjóðlegum mannúðarlögum í tengslum við hernaðaraðgerðir í Íran og leggja áherslu á skyldu Bandaríkjanna til að vernda óbreytta borgara;
- kalla eftir því að þeir sem bera ábyrgð á brotum gegn alþjóðalögum verði dregnir til ábyrgðar.
Marco Antonio Rubio er fæddur 28.maí 1971. Hann er sonur kúbverskra innflytjenda og fyrsti spænskumælandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann er mikill stuðningsmaður stjórnvalda í Ísrael og styður hömlur á innflutning frá Kína.
Rubio er fæddur og uppalinn í Miami á Flórída. Hann var þingmaður í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Flórída árið 2000 og fékk sæti í öldungadeildinni 2010.
Hann freistaði þess að verða forseti Bandaríkjanna þegar hann bauð sig fram í forvali Repúblikanaflokssins 2015. Þar var hann afar gagnrýninn á mótframbjóðanda sinn, Donald Trump og þeir tókust oft harkalega á í kappræðum og annari umræðu. Trump hafði betur og varð forsetaframbjóðandi Repúblikana og svo forseti sem kunnugt er. Rubio fylkti sér svo að baki honum í aðdraganda kosninga og ekki virðist orðaskakið hafa dregið mikinn dilk á eftir sér því Trump valdi Rubio sem utanríkisráðherrann sinn á seinna kjörtímabili sínu.
„Hver hleypti hundunum út“ er spurt í laginu góða. Í Höfða kemst hins vegar enginn nema með samþykki hundanna. Búnaður fjölmiðlafólks þurfti samþykki bæði hunda sérsveitarinnar og einnig hunda öryggisliðs Rubio.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er mætt í Höfða. Tilbúin að taka á móti bandaríska starfsbróður sínum. Það fór vel á með þeim í gær þegar Þorgerður tók á móti Rubio á Keflavíkurflugvelli.
Ragnar Visage, ljósmyndari okkar, er einnig við Höfða. Allir fjölmiðlamenn sem ætla að fylgjast með dagskrá Rubio í dag, þurftu að taka daginn snemma. Það þarf að yfirfara allan búnað sem á að nota, myndavélar og allt tilheyrandi, eins og sjá má á myndum Ragnars hér að neðan.
Hiti var við frostmark í höfuðborginni í morgun og Höfði skartaði sínu fegursta í stillunni, eins og sjá má á myndinni sem Hallgrímur Indriðason tók.
Höfði er fyrsti viðkomustaður Marco Rubio í dag.
Það ætti ekki að hafa farið fram hjá mörgum að utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, er staddur hér á landi. Hann fundar með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra í dag. Ég heiti Birta Björnsdóttir og í þessari fréttavakt segjum við allar helstu fréttirnar frá heimsókn dagsins. Við vonum að þið hafið af því gagn en einnig nokkurt gaman.