Hún valdi dökkgrænan kjól sem er frá tískuhúsi ofurstjörnunnar Victoriu Beckham til að taka á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Við kjólinn paraði hún svarta einfalda hæla og svarta ullarkápu en poppaði upp á klæðaburðinn með grænni leðurtösku í stíl við kjólinn.
Kjóllinn er nánast uppseldur hjá Victoriu Beckham en er eftir í stærð 40 og kostar um 1550 bandaríkjadali eða 188 þúsund íslenskar krónur.